Sjálfskiptingin verður sífellt vinsælli með árunum og þá sérstaklega með tilkomu rafmagnsbíla. Aðdáendur beinskiptingarinnar eru eflaust svekktir út í þessa þróun þar sem mörgum finnst skemmtilegra og meira gefandi að keyra beinskiptan bíl. Ný rannsókn frá Þróunarstofnun Tohoku-háskóla í Japan sýnir fram á að það að keyra handskiptan bíl örvar framheilan á þann hátt sem sjálfskiptir bílar gera hreinlega ekki.
Rannsókninni var stýrt af Ryuta Kawashima, sem er sérfræðingur í heila- og tauga myndatökum. Hann er best þekktur fyrir að framleiða tölvuleik fyrir Nintendo sem hjálpar fólki að virkja heilastarfsemina. Að sögn Kawashima örvar sú líkamlega röð aðgerða sem fylgir því að keyra beinskiptan bíl einmitt það svæði heilans sem sér um minni, athygli og ákvarðanatöku.
Virkar eins og hófleg en dýrmæt heilaleikfimi
Rannsóknin sýnir að það að keyra beinskiptan bíl á hverjum degi virkar eins og hófleg en dýrmæt heilaleikfimi. Þetta getur hjálpað eldri heila að viðhalda og bæta hugræna virkni (e. cognitive function) með tímanum. Það er eitthvað sem sjálfskiptir bílar bjóða hreinlega ekki upp á.
Beinskiptum bílum fer ört fækkandi á heimsvísu
Þrátt fyrir þessa heilsubót fer beinskiptum bílum ört fækkandi á heimsvísu. Í Japan eru aðeins 1 til 2 prósent allra nýrra seldra bíla með kúplingu. Í Bandaríkjunum er staðan enn verri en þar voru beinskiptir bílar aðeins um 0,7% af nýbílasölunni árið 2024. Evrópa heldur þó enn í merki beinskiptingarinnar en sem dæmi má nefna að hlutfall nýrra beinskiptra bíla á Spáni er um 41% og 48% á Ítalíu.







