Sjáumst í myrkrinu: FÍB gefur félagsmönnum endurskinsmerki

Lestími: < 1 mín

Skólarnir eru byrjaðir og dagarnir styttast hratt. Börn og ungmenni eru á ferðinni til og frá skóla og tómstundum, oft í myrkri, rigningu og slæmu skyggni. Á þessum árstíma skiptir miklu máli að gangandi og hjólandi vegfarendur séu vel sýnilegir.

Endurskinsmerki gerir gæfumuninn. Ökumaður sér vegfaranda í dökkum fötum oft ekki fyrr en í um 20 – 30 metra fjarlægð í lágu ljósi. Með endurskinsmerki sést hann úr allt að 125 metra fjarlægð, og það gefur ökumanni dýrmætan tíma til að bregðast við. FÍB hefur því látið útbúa endurskinsmerki fyrir félagsmenn og fjölskyldur þeirra.

Félagsmenn geta nálgast merkin endurgjaldslaust á skrifstofu FÍB, Skúlagötu 19. Þeir sem búa utan höfuðborgarsvæðisins geta haft samband við skrifstofuna í síma 414-9999 eða á netfangið fib@fib.is og fengið merkin send heim.

Gott ráð er að festa merkið neðarlega, til dæmis á tösku eða jakka í hnéhæð, svo það sveiflist og grípi ljós bílanna. Ökumenn bera líka ábyrgð: hægja á sér við skóla og gangbrautir og hafa ljósabúnað og rúður hreinar.

Sjáumst – og verum sýnileg!


Deila grein: