Framtíðarsýn Porsche varðandi vélbúnað markar mikilvæg tímamót. Í stað þess að fara alfarið í rafbílavæðingu hefur fyrirtækið ákveðið að hægja á og halda sterku taki í hefðbundna brunahreyfla samhliða rafmagns- og tvinntækni.
Porsche ætlar að halda áfram að fjárfesta í fjölbreyttum aflrásum. Hreinum bensínvélum, tvinnbílum, tengiltvinnbílum og hreinum rafbílum. Stefnan er sú að tveir af hverjum þremur bílum í vörulínu fyrirtækisins verði áfram með bensínvél eða tvinntækni, á móti einum hreinum rafbíl
Michael Leiters, sem varð forstjóri Porsche í fyrra, er á bak við þessa nýju stefnu fyrirtækisins. Porsche lítur á sportbíllinn 911 sem kjarna vörumerkisins og ætlar að vernda þá arfleifð. Leiters hefur meira að segja sagt í viðtali: ,,Ég get fullvissað ykkur um að 911 verður aldrei rafknúinn.”
Þótt bensínvélin fái aukið vægi, er Porsche ekki hætt við rafbíla. Næsta kynslóð af 718 Boxster og Cayman, sem væntanleg er árið 2028, verður eingöngu rafknúin. Porsche hafði um tíma íhugað að breyta nýja rafbíla-undirvagninum fyrir 718-línuna til að koma þar fyrir bensínvélum, en hefur nú hætt við þær breytingar. 718-línan verður því eingöngu 100% rafmagnssportbíll.
Forstjóri Porsche segir að sportbíllinn 911 verði aldrei rafknúinn
Lestími: < 1 mín







