Búið að malbika hring­torg við Rjúpna­veg

Lestími: < 1 mín

Vinnu við malbikun og yfirborðsmerkingar á nýja hringtorginu við Rjúpnaveg er lokið en verkið er hluti af framkvæmdum vegna nýs Arnarnesvegar. Þar með er vinnu við vegi og vegtengingar verksins lokið og búið að hleypa á bílaumferð.

 Hringtorgið er nú opið fyrir umferð en innri akreinin verður þó ekki tekin í notkun fyrr en frágangi á miðju hringtorgsins lýkur samkvæmt áætlun í næstu viku.

Áætluð verklok Arnarnesvegar og tengdra framkvæmda eru í nóvember 2026.

Arnarnesvegur (411), 3. áfangi, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar, er hluti af Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins þar sem lögð er áhersla á að bæta innviði fyrir fjölbreytta ferðamáta og skapa öruggari leiðir um höfuðborgarsvæðið.

Deila grein: