Stjórnvöld fá auknar heimildir til þess að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri ef frumvarp umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra sem nú er til kynningar í Samráðsgátt stjórnvalda nær fram að ganga að því er fram kemur í tilkynningu á vef stjórnarráðsins.
Frumvarpsdrögin fela í sér margháttaðar umbætur á náttúruverndarlögum og lúta meðal annars að uppbyggingu innviða, landtöku farþega á friðlýstum svæðum og skýrari heimildum til friðlýsingar og friðunar í hafi. Þar eru jafnframt lagðar til breytingar er snúa að úrræðum stjórnvalda til viðbragða við ólögmætum utanvegaakstri.
Jóhann Páll Jóhannsson ráðherra lýsti því yfir síðasta sumar, eftir að ferðamenn voru staðnir að grófum og ítrekuðum utanvegaakstri, að taka þyrfti miklu fastar á slíkum brotum.
Í frumvarpsdrögunum er lagt til að Náttúruverndarstofnun verði heimilt að annast nauðsynlegar úrbætur á verulegum náttúruspjöllum vegna utanvegaaksturs og krefja þann sem veldur spjöllunum um kostnað við úrbæturnar, svo sem við að afmá jarðrask, lagfæra gróðurskemmdir og draga að öðru leyti úr áhrifum brotsins.
Jafnframt er lagt til að lögregla fái heimild til tímabundinnar haldlagningar ökutækja til að koma í veg fyrir áframhaldandi brot eða frekari spjöll en í dag er einvörðungu hægt að gera ökutæki upptækt með dómi. Loks er lagt til að viðurlög vegna brota sem valda alvarlegum náttúruspjöllum verði hert og samræmd viðurlögum samkvæmt öðrum lögum á þessu sviði.
Athygli er vakin á að umsagnarfrestur í Samráðsgátt er til og með 10. nóvember 2026.







