Green NCAP, óháð evrópskt prófunar- og matskerfi sem mælir umhverfisahrif, orkunýtni og losun nýrra fólksbíla, hefur veitt Tesla Model Y hámarkseinkunn, fimm stjörnur, fyrir sjálfbærni sem varpar nýju ljósi á raunveruleg umhverfisáhrif vinsælasta rafbíls Evrópu. Bíllinn, sem er framleiddur í Berlín og seldist í 150.000 eintökum í Evrópu á síðasta ári, fékk 93% í heildareinkunn og skar sig sérstaklega úr með 10/10 fyrir gróðurhúsalofttegundir.
Það sem gerir þetta mat sérstaklega merkilegt er að Tesla deildi í fyrsta sinn heildstæðum gögnum um lífsferilsmat með Green NCAP, sem varð til þess að farið var frá almennum iðnaðarforsendum yfir í staðfest gögn frá framleiðanda. Þrátt fyrir að vega 1,9 tonn náði Model Y (62,6 kWh afturhjóladrifinn) heildarkolefnisfótspori upp á aðeins 95 g CO2‑ígildi/km yfir líftíma sinn.
Stóð sig sérlega vel við raunverulegar aðstæður
Bíllinn stóð sig einnig vel við raunverulegar aðstæður, viðhélt hita í farþegarými á hagkvæman hátt í kulda og kláraði 10 til 80% hraðhleðslu á 24 mínútum. Samanburðurinn við hefðbundna brunavél er sláandi. Volkswagen Tayron, sem er mild-hringtengdur, mild-hybrid, bensínjeppi, náði aðeins 2½ stjörnu og 41% einkunn, með lífsferilsfótspor upp á 263 g CO2‑ígildi/km, sem er næstum þrefalt meira en hjá Model Y. Þetta sýnir glöggt það bil sem enn getur skilið á milli raf- og bensínjeppa af svipaðri stærð.
BYD DOLPHIN SURF vakti athygli í flokki smábíla
Annars staðar í þessari prófunarlotu vakti BYD DOLPHIN SURF athygli í flokki smábíla og hlaut fimm stjörnur og 96% einkunn. Það má þakka lítilli þyngd og mikilli orkunýtni, þrátt fyrir að vera metinn út frá almennum gögnum frekar en staðfestum framleiðslugögnum.
Suzuki e VITARA hlaut 4½ stjörnu en þyngd bílsins og hægari hraðhleðsla drógu hann helst niður. Hvað brunavélar varðar reyndist Volkswagen Golf 2.0 TDI vera besti brunavélabíllinn sem Green NCAP hefur prófað til þessa og fékk 69% einkunn, rétt undir 70% viðmiðinu fyrir fjórar stjörnur.






