Rúmlega 28 þúsund bílaleigubílar skila kílómetragjaldi

Lestími: < 1 mín

Fyrstu níu mánuði ársins var kílómetragjaldi skilað af 29.755 bílaleigubílum að jafnaði. Fæstir voru bílarnir í febrúar, rúmlega 24.318 og flestir í júní, 34.657. Þar sem bílaleigubílum í umferð fækkar síðusu mánuði ársins má gera ráð fyrir að þeir verði að jafnaði 28.700 á þessu ári.

Áætla að hverjum bílaleigubíl sé ekið um 34 þúsund kílómetra á ári

Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) áætla að hverjum bílaleigubíl sé ekið um 34 þúsund kílómetra á ári. Miðað við það má áætla að tekjur ríkissjóðs af kílómetragjaldi bílaleigubíla verði um 6,7 milljarðar króna á árinu.

Bílaleigur mega velja hvort bílar þeirra eru skráðir fyrir föstum 200 km akstri á dag, eða greiði eftir kílómetramæli. Bílaleigurnar geta fært bílana á milli þessara kerfa eftir hentugleikum hverju sinni.

 Í yfirliti frá Skattinum um skiptingu milli þessara innheimtukerfa vekur athygli að síðasta sumar hækkar hlutfall þeirra bíla sem eru skráðir í daggjaldakerfið verulega. Í júlí og ágúst eru 43% bílanna í daggjaldakerfinu, en 28% í febrúar og mars.

Ætla mætti að þessu væri öfugt farið, þar sem mesti akstur ferðamanna á sér stað á háannatíma sumarsins. Fyrir bílaleigurnar gæti þó verið einfaldara og fyrirsjáanlegra að innheimta fasta 200 kílómetra gjaldið í mesta annríkinu. Hins vegar er ekki ljóst hvort það endurspeglar raunverulegan akstur bílanna.

Deila grein: