Lækkun á heimsmarkaðsverði hefur ekki skilað sér í bensínverði á Íslandi

Lestími: 2 mín

„Allar tölur sýna okkur að álagningin er bara í hæstu hæðum um þessar mundir og þessi félög skulda neytendum verulega lækkun,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, í viðtali í morgunfréttum á RÚV.

Meðalverð á dísillítra hefur hækkað um 51 krónu

Samkvæmt greiningu FÍB hefur meðalverð bensínlítrans hækkað um 27 krónur frá 1. september þegar tímabundinni lækkun virðisaukaskatts lauk. Meðalverð á dísillítra hefur hækkað um 51 krónu. Runólfur bendir á að íbúar höfuðborgarsvæðisins hafi val um ódýrara eldsneyti því Costco sé á allt annarri vegferð en hin olíufélögin.

Álagningin ætti að vera miklu nær því sem við erum að sjá hjá Costco

„Costco kaupir af einu olíufélaganna eldsneyti og um þessar mundir er bensínlítrinn hjá Costco 14 krónum ódýrari heldur en þar sem hann er ódýrastur hjá Orkunni, sem auglýsti sig löngum alltaf ódýrasta. Og verðið er komið í 45 króna mun þegar við tökum dýrustu verð sem finnast á stöðvum. Það segir sig sjálft að álagningin ætti að vera miklu nær því sem við erum að sjá hjá Costco,“ segir Runólfur.

ASÍ segir meðaltal lægsta bensínverð á Íslandi hafa hækkað um 35% á þessu ári en 40% séu opinber gjöld tekin út fyrir sviga.

Runólfur vill að stjórnvöld grípi inn í líkt og gert er á mun stærri mörkuðum eins og Belgíu, Hollandi, Þýskalandi og Danmörku. Lækkun á heimsmarkaðsverði hefur ekki skilað sér í bensínverði á Íslandi samkvæmt greiningum FÍB og ASÍ.

Þýðir ekki alltaf bara að horfa út undan sér og gera ekki neitt

„Það sé einhvers konar verðlagsþak eða eitthvað gert því markaðnum virðist ekki vera treystandi til að iðka eðlilega samkeppni. Það fyrsta sem hægt væri að gera væri að auka kröfur varðandi sýnileika á verði. Það er eins og ég segi, það þýðir ekki alltaf bara að horfa út undan sér og gera ekki neitt,“ sagði Runólfur Ólafsson í viðtalinu á RÚV.

Deila grein: