Tillögur um hertar reglur í Bretlandi fyrir ökumenn 70 ára og eldri

Lestími: < 1 mín

Breska ríkisstjórnin er á lokametrunum með að kynna formlega tillögur sínar um skyldubundin sjónpróf fyrir ökumenn 70 ára og eldri. Breska hélt opinbert samráðsferli um málið frá janúar til maí á þessu ári. Samkvæmt fréttum breskra fjölmiðla mun ríkisstjórnin birta formleg viðbrögð sín og kynna næstu skref á komandi vikum sem hluta af nýrri umferðaröryggisstefnu.

 Eins og staðan er í dag þurfa ökumenn yfir sjötugu að endurnýja ökuskírteini sín á þriggja ára fresti en það byggist eingöngu á sjálfsmati. Nú þarf aðeins að haka einfaldlega við reit um að sjón þeirra uppfylli lagaleg skilyrði að geta lesið bílnúmer af 20 metra færi.

Nýju áformin ná til yfir sex milljóna ökumanna

Nýju áformin ná til yfir sex milljóna ökumanna og fela í sér að þeir þurfi að gangast undir formlegt sjónpróf á þriggja ára fresti. Niðurstöðurnar verða sendar beint til bresku ökutækjaskrárinnar (DVLA), sem fær heimild til að svipta þá réttindum sem ekki standast prófið.

Auk sjónprófa hafa bresk stjórnvöld einnig haft til skoðunar hvort innleiða eigi hugrænt mat fyrir eldri ökumenn síðar meir þótt sjónprófin séu í algjörum forgangi núna.

Samtök augnlækna og sjóntækjafræðinga í Bretlandi fagna tillögunum

Samtök augnlækna og sjóntækjafræðinga í Bretlandi  fögnuðu fréttunum opinberlega og sögðu þær mikilvægt skref fyrir umferðaröryggi þar sem sjóntap gerist oft hægt og án þess að fólk taki eftir því sjálft. Félag breskra bifreiðaeigenda (AA) hefur einnig tekið jákvætt í hugmyndirnar.

Lögum hefur ekki enn verið breytt. Sjóntækjafræðingar benda á að ökumenn yfir sjötugu þurfi ekkert að aðhafast að svo stöddu umfram það að halda áfram að mæta í reglulegar sjónmælingar sem eru gjaldfrjálsar í gegnum breska heilbrigðiskerfið, NHS, fyrir fólk yfir sextugu.

Deila grein: