Það sem af er árinu hefur sala á nýjum fólksbifreiðum dregist saman um 4% miðað við sama tíma á síðasta ári. Nýskráningar eru nú orðnar 11.920 en voru á sama tíma í fyrra 12.414. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Bílgreinasambandinu.
Einungis 279 nýskráningar í nóvember
Bílasala tók mikinn kipp í október en einungis í þeim eina mánuði voru nýskráningar 600 talsins. Það sem af er nóvember mánuði eru þær einungis 279 svo samdrátturinn er töluverður. Í ágúst og september mátti einnig merkja aukningu í nýskráningum en október er annar hæsti mánuðurinn í nýskráningum á þessu ári
Ástæðuna fyrir þessum samdrætti má að einhverju leyti rekja til nýrra reglna um ríkisstyrki sem tóku gildi 1. nóvember sl. Stjórnvöld tilkynntu þá lækkun á styrkjum til kaupa á nýjum rafknúnum fólksbílum. Styrkurinn fór úr 500.000 krónum niður í 400.000 krónur fyrir nýja fólksbíla. Einnig er kulnun í hagkerfinu og almenningur að draga saman seglin.
Hrein rafbílar með 70% hlutdeild
Eins og þróunin hefur verið um langa hríð eru langflestar nýskráningar í hreinum rafbílum. Þær eru nú orðnar á þessu ári 6.518 bifreiðar sem er um 70% markaðshlutdeild. Hybrid-bílar eru með 2.312 nýskráningar og tengiltvinnbílar koma í þriða sæti með 2.009 nýskráningar.
KIA hefur lengstum á þessu ári verið í efsta sæti í nýskráningum. Það breyttist nú í síðustu tölum þegar Toyota skreið framúr. Nýskráningar fólksbifreiða í Toyota eru nú 1.482 bifreiðar sem er um 12,4% hlutdeild. KIA kemur næst með 1.467 bifreiðar og 12,3% hlutdeild. Tesla eri í þriðja sæti með 1.005 bifreiðar. Hyundai er í fjórða sæti með 750 og Skoda með 563 í fimmta sætinu.
Nýskráningum í Evrópusambandinu fjölgað um 5,4%
Samkvæmt nýjustu tölum Samtaka evrópskra bílaframleiðenda, ACEA, sem ná yfir fyrstu tíu mánuði ársins 2026, janúar–október, hefur nýskráningum fólksbíla á svæðinu fjölgað um 5,4% í Evrópusambandinu miðað við sama tímabil í fyrra og nemur hún samtals 9,46 milljónum bíla.
Sé horft til Evrópu í víðari skilningi, ESB, EFTA-ríkin og Bretland, nemur heildarsalan 11,68 milljónum bíla það sem af er ári. Mikil breyting hefur orðið á samsetningu bílaflotans á árinu þar sem rafbílar sækja hratt í sig veðrið á kostnað hefðbundinna brunahreyfilsbíla.







