Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, telur að bensínlítrinn ætti að geta kostað um 240 krónur hér á landi miðað við núverandi aðstæður. Hann segir neytendur eiga inni umtalsverðar verðlækkanir og að útreikningar félagsins bendi til þess að álagning olíufélaganna hafi sjaldan eða aldrei verið meiri. Þetta er meðal þess sem fram kemur í viðtali við Runólf á mbl.is.
Eins og fram hefur komið hefur samkeppniseftirlitið óskað eftir nýjum gögnum frá olíufyrirtækjunum vegna þróunar eldsneytisverðs undanfarna mánuði. Heimsmarkaðsverð á eldsneyti hefur haldist hátt í sögulegu samhengi. Eftirlitið segir í tilkynningu því mikilvægt að fylgjast áfram vel með verðmyndun og samkeppnisaðstæðum á eldsneytismarkaði. Runólfur fagnar athuguninni en segir verðlækkanir undanfarinna daga litlar í samanburði við þróun heimsmarkaðsverðs.
Lækkun hefur ekki skilað sér í bensínverði á Íslandi samkvæmt greiningum FÍB og ASÍ
Lækkun á heimsmarkaðsverði hefur ekki skilað sér í bensínverði á Íslandi samkvæmt greiningum FÍB og ASÍ. Samkvæmt greiningu FÍB hefur meðalverð bensínlítrans hækkað um 27 krónur frá 1. september þegar tímabundinni lækkun virðisaukaskatts lauk. Meðalverð á dísillítra hefur hækkað um 51 krónur.
Í umfjölluninni á mbl.is kemur fram að í verðsamanburði Iceland Roads, sem byggist á gögnum Gasvaktarinnar, var meðalverð bensínlítrans um 272 krónur í gærmorgun. Mikill verðmunur er þó á milli bensínstöðva. Á nokkrum stöðvum á höfuðborgarsvæðinu fékkst lítrinn á 247 krónur og á 236 krónur hjá Costco en á öðrum stöðvum á svæðinu var verðið yfir 272 krónum fyrir afslátt.
Verðmyndun á íslenskum eldsneytismarkaði mjög einsleit
Runólfur Ólafsson segir verðmyndun á íslenskum eldsneytismarkaði mjög einsleita og telur skorta samkeppni milli olíufélaganna. Verðmunur á ódýrustu stöðvum þeirra nemi stundum aðeins um tíu aurum.
Costco skeri sig hins vegar úr. Að sögn Runólfs var bensínlítrinn þar ellefu krónum ódýrari en þar sem bensínið er ódýrast hjá Orkunni þegar viðtalið var tekið.
Sami verðmunur kom fram í verðsamanburði Iceland Roads í morgun. Þar var bensínlítrinn skráður á 236 krónur hjá Costco og 247 krónur á ódýrustu stöðvum Orkunnar. Kaup á eldsneyti hjá Costco eru háð aðild að versluninni.
Runólfur segir jafnframt að munað geti allt að 30 krónum á hæsta og lægsta bensínverði hjá sama olíufélagi.
Miðað við að álagning væri einhvers staðar á milli þess sem tíðkast hjá Costco og á ódýrustu stöðvum olíufélaganna telur Runólfur að útsöluverð bensíns gæti verið í kringum 240 krónur á lítra. Það fæli að hans mati í sér um 25 króna lækkun á meðalálagningu.
Tugum króna yfir meðaltali ársins
FÍB fylgist alla virka daga með markaðsverði á bensíni og dísilolíu í Norðvestur-Evrópu og umreiknar það miðað við gengi Bandaríkjadals. Félagið ber niðurstöðurnar jafnframt saman við tölur Hagstofu Íslands um innflutningsverð eldsneytis.
Runólfur segir útreikninga félagsins benda til þess að álagning það sem af er nóvember sé tugum króna meiri á hvern lítra en hún hefur að meðaltali verið á árinu. Hann leggur áherslu á að jafnvel lítil breyting á álagningu skipti miklu þegar horft sé til þess magns eldsneytis sem selt er hér á landi.
Miðað við sölu á 350 milljónum lítra nemi hver króna í aukinni álagningu 350 milljónum króna fyrir neytendur, áður en virðisaukaskattur er tekinn með í reikninginn.
„Þannig að hver króna telur mjög drjúgt,“ segir hann.
Runólfur telur hins vegar að verðlækkanir hér á landi hefðu átt að koma mun fyrr fram. Spurður hversu langan tíma eðlilegt sé að það taki lækkun heimsmarkaðsverðs að skila sér til íslenskra neytenda segir hann að tala eigi um daga fremur en mánuði.
Hann segir eldsneytisbirgðir vissulega hafa áhrif á verðmyndun en telur þau áhrif jafnast út þegar litið sé yfir árið. Útsöluverð eigi því að taka mið af heimsmarkaðsverði hverju sinni.
Svigrúm til mun meiri lækkana
Runólfur segir olíufélögin stundum vísa til þess að eldsneyti hafi verið keypt inn á óhagstæðum tíma.
„Þeir virðast oft vera mjög óheppnir við innkaup,“ segir hann.
Hann segir eldsneytisverð hér á landi hafa verið að lækka um eina til tvær krónur í senn síðustu daga en telur svigrúm til mun meiri lækkana.
„Þetta hefði átt að vera búið að gerast miklu hraðar.“
Runólfur bendir jafnframt á að eldsneytisverð í nágrannalöndunum sé nú komið vel undir það verð sem þar gilti í byrjun september á meðan verðið hér á landi sé enn töluvert hærra en þá.
Segir samkeppnisneistann vanta
Runólfur kallar eftir auknu aðhaldi stjórnvalda og segir eldsneytisverð hafa veruleg áhrif á afkomu heimila og fyrirtækja, auk þess sem það vegi þungt í vísitölu neysluverðs.
Hann bendir á að stjórnvöld víða í Evrópu fylgist sérstaklega með verðlagningu eldsneytis og að sums staðar sé miðað við álagningarþak.
Skoða þurfi sambærileg úrræði hér á landi ef markaðurinn sjálfur veiti ekki nægilegt aðhald.
Verðlagning og samkeppni til skoðunar
Samkeppniseftirlitið ætlar meðal annars að kanna hvernig breytingar á innkaupsverði eldsneytis í haust hafa skilað sér til neytenda, hvernig álagning olíufélaganna hefur þróast og hvort vísbendingar séu um samkeppnishindranir.
Fram kemur á vef FÍB að eftirlitið hafi jafnframt lokið athugun á tímabundinni lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti í sumar og komist að þeirri niðurstöðu að lækkunin hafi skilað sér að fullu til neytenda. Sú athugun náði aðeins til tímabilsins 1. maí til 31. ágúst, þegar skattalækkunin var í gildi.







