Hafin er hreinsun á götum Reykjavíkurborgar. Byrjað er á stofnbrautunum og síðan farið í þrif á tengivegum og húsagötum. Verkefnið er unnið með svipuðum hætti og undanfarin ár. Allar göturnar verði sópaðar og þvegnar, það sé jafnan hluti af vorhreinsun gatnakerfis borgarinnar.
Búist er við að götuþrifin taki nokkrar vikur og annast Hreinsitækni þrifin á grundvelli útboðs. Verkefnið er ærið, en lengd gatna í borginni er tæplega 435 km en lengd göngu- og hjólaleiða 876 km.







