Tesla ekki lengur efst í hugbúnaðaruppfærslum

Lestími: < 1 mín

Bílaframleiðendur eru að setja mikla áherslu á hugbúnað í dag og það virðist vera framtíðinn. Fyrir 10 árum þegar fólk keypti bíl þá kom hann með þeim eiginleikum sem voru auglýstir og þessir eiginleikar urðu úreltir með tímanum. Í dag hins vegar hefur landslagið breyst og flestir bílar, þá sérstaklega rafbílar, hafa hugbúnað sem hægt er að uppfæra með tímanum, sem gæti gert bílinn betri. Þetta er oft betri aksturs aðstoðarkerfi, betri skilvirkni og ný öpp.

Rafmagnsbílar eru byggðir að mestu á tölvu og hugbúnaðarkerfum, allt frá rafhlöðunni og hvernig aflið drífur hjólin áfram. Ávinningurinn við að hafa bíl sem uppfærir sig er að bíllinn er alltaf með nýjustu kerfin.

Tesla voru lengi fremstir í bíla hugbúnaði og uppfærslum. Þeir voru fyrstir að innleiða stórar þráðlausar uppfærslur, Over-the-air (OTA) uppfærslur. Eins og staðan er núna hefur BYD tekið fram úr þeim þegar kemur að reglulegum uppfærslum. Það getur verið slæmt fyrir ímynd Teslu þar sem þeir vilja vera tæknivæddastir.

Samkvæmt heimildum var BYD með 200 OTA uppfærslur á síðasta ári. Til samanburðar voru 16 OTA uppfærslur hjá Teslu á sama tímabili, sem kemur á óvart þar sem Tesla hefur lengi verið tæknirisinn á bílamarkaðnum. Toyota voru með átta uppfærslur og Volkswagen með fimm.

Það er gott að bílaframleiðendur hugsi til þess að bæta tæknina, sem getur bætt akstursupplifun, öryggi o.fl. Það er hins vegar spurning hvort að uppfærslunar þurfi að vera 200 á ári.

Deila grein: