Menningarnótt fer fram laugardaginn 22. ágúst 2026. Í samráði við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu verður hluti miðborgarinnar lokaður fyrir akandi umferð til að tryggja öryggi gesta.
Almennt gilda götulokanir frá klukkan 07:00 laugardaginn 22. ágúst til miðnættis, en nokkrar lokanir hefjast fyrr og aðrar gilda aðeins hluta dags.
Lokanir sem hefjast fyrir Menningarnótt
Kalkofnsvegur
Frá klukkan 13:00 fimmtudaginn 20. ágúst verður Kalkofnsvegur, milli Hverfisgötu og Geirsgötu, lokaður vegna uppsetningar sviðs við Arnarhól. Lokunin stendur fram yfir Menningarnótt. Aðeins viðbragðsaðilum verður heimilt að fara um lokunarsvæðið.
Strætisvagnar fara hjáleið. Nánari upplýsingar eru á vef straeto.is.
Geirsgata og Sæbraut
Frá klukkan 16:00 föstudaginn 21. ágúst verður Geirsgötu, milli Kalkofnsvegar og Tryggvagötu, lokað vegna undirbúnings Reykjavíkurmaraþons. Vegna þess verður Sæbraut jafnframt lokuð frá Faxagötu.
Hverfisgata
Hægt verður að aka um Hverfisgötu frá klukkan 16:00 föstudaginn 21. ágúst til klukkan 07:00 að morgni Menningarnætur. Eftir klukkan 07:00 verður götunni lokað fyrir akandi umferð.
Sérstakar lokanir á Menningarnótt
Tjarnargata verður lokuð frá klukkan 12:00–16:00 vegna Skemmtiskokks Reykjavíkurmaraþons og góðgerðaraksturs H.O.G. Iceland.
Suðurgata verður lokuð frá klukkan 14:00–16:00 vegna góðgerðaraksturs H.O.G. Iceland.
Sæbraut við Faxagötu: Eftir klukkan 13:00 verður hægt að þvera Sæbraut um Faxagötu fyrir þau sem þurfa að komast í bílakjallarann undir Hörpu.
Njarðargata verður aðgengileg allan daginn. Búast má þó við truflunum fyrir hádegi þegar skutlur Strætó hafa forgang.
Aðgengi að Landspítalanum verður um Snorrabraut og Eiríksgötu.
Reykjavíkurmaraþon og umferð
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram frá klukkan 08:15–15:30 á Menningarnótt. Vegna hlaupsins verða frekari truflanir og tímabundnar lokanir á umferð. Íþróttabandalag Reykjavíkur er framkvæmdaaðili hlaupsins.
Nánari upplýsingar um umferðartakmarkanir vegna maraþonsins má finna á vef Reykjavíkurmaraþons.
Strætó á Menningarnótt
Strætó ferjar gesti úr öllum hverfum höfuðborgarsvæðisins frá morgni til kvölds samkvæmt gjaldskrá. Upplýsingar um ferðir og breytingar á leiðakerfi eru á vef Strætó.
Frá klukkan 21:30 verður leiðakerfið rofið og öllum vögnum beint að Sæbraut við Sólfarið. Ekki verður hægt að taka Strætó frá öðrum stöðum á meðan heimakstur eftir flugeldasýningu stendur yfir.
Frítt verður í Strætó við heimakstur eftir flugeldasýningu og verður ekið í öll hverfi höfuðborgarsvæðisins.
Landsbyggðarvagnar
Áætlunarferðir á eftirfarandi leiðum fara frá biðstöðinni við Skúlagötu klukkan 22:40, samkvæmt gjaldskrá:
- Leið 51 til Selfoss
- Leið 55 til Keflavíkur
- Leið 57 til Akraness
Nánari upplýsingar
Frekari upplýsingar um dagskrá og framkvæmd Menningarnætur má finna á vef Reykjavíkurborgar.








