Bílaframleiðandinn Porsche og ítalski heimilistækjaframleiðandinn Smeg hefja samstarf þar sem hágæða hönnun eldhústækja og kappaksturs arfleifð mætast. Um er að ræða sérstaka takmarkaða línu af heimilistækjum, þar á meðal hinum klassíska FAB28 ísskáp sem margir eflaust þekkja, kaffivél, brauðrist, hraðsöguketil og blandari. Samstarfið heiðrar fyrsta sigur Porsche í 24 klukkustunda kappakstrinum í Le Mans.
Heimilistækin sameina stíl Smeg sem fær innblástur frá sjötta áratugnum og sportlegu útliti Porsche. Það má finna einkennandi hönnunaratriði á borð við vinsæla lita sem hafa sést á Porsche bílum og hinar sígildu Porsche línur
Hápunktur línunnar er sérstök „Salzburg“ útgáfa af ísskáp og kaffivél sem vísar til sögulegs fyrsta sigurs Porsche í hinum fræga 24 klukkustunda kappakstri í Le Mans árið 1970. Tækin eru skærrauð með hvíta kappakstursrönd og bera númerið 23, líkt og hinn goðsagnakenndi Porsche 917 KH kappakstursbíll.
Stefan Büscher, forstjóri Porsche Lifestyle Group, segir samstarfið byggja á sameiginlegri sýn um að búa til hluti sem eru ekki aðeins tæknilega fullkomnir heldur vekja líka tilfinningar.







