Aðeins fimm sjálfvirk neyðarsímtöl (eCall) bárust Neyðarlínunni úr ökutækjum í júní, samanborið við 150 til 175 símtöl á mánuði að meðaltali áður. Skellt var í lás fyrir 2G- og 3G-farsímakerfi landsins um mánaðamótin og er Ísland fyrsta Evrópuþjóðin til að slökkva alveg á kerfunum.
Ármann Gestsson, varðstofustjóri hjá Neyðarlínunni, segir mikið gagn hafa verið af kerfinu og vonast til að hægt verði að bregðast við stöðunni að því er fram kom í umfjöllun um málið í kvöldfréttum á RÚV.
Áætlað er að tugir eða allt að hundrað þúsund bílar á Íslandi séu nú með óvirkt eCall-kerfi og nái ekki sambandi við Neyðarlínuna við árekstur. Þá eru enn um 6.000 farsímar óvirkir eftir lokunina.
Að sögn Ómars Sveinssonar, þjónustufulltrúa hjá Höldi á Akureyri, er ekki hægt að uppfæra allar bíltegundir. Þar sem það er hægt getur kostnaðurinn hlaupið á tugum þúsunda króna. Hann segir kerfið lífsnauðsynlegt en sumir framleiðendur bjóði hreinlega ekki upp á uppfærslur og skelli skuldinni á símkerfin.
Gríðarlegur kostnaður víðar í samfélaginu
Lokunin bitnar á fleiru en bílum og símum. Hún hefur einnig áhrif á öryggiskerfi, lyftusíma og sum lækningatæki. Fyrirtæki á borð við Öryggismiðstöðina og lyftufyrirtækið Koné hafa eytt ómældum tíma og milljónafjárhæðum í að skipta um búnað undanfarna mánuði til að bregðast við breytingunni.
Fjarskiptakerfið er í eigu fjarskiptafélaganna en Fjarskiptastofa hefur eftirlit með þeim. Eins og sakir standa ríkir óvissa um hvar ábyrgðin liggur og bendir hver á annan.
Logi Karlsson, framkvæmdastjóri tækniþróunar Símans, segir stjórnvöld hafa verið vel upplýst í mörg ár. Ríkið hefði haft mörg tækifæri til að grípa inn í ef vilji hefði verið til þess. Hann spyr líka hvort bílaframleiðendur hefðu ekki átt að sjá þetta fyrir, enda hafi legið fyrir lengi að þessi tækni myndi heyra sögunni til á heimsvísu.
Fjarskiptastofa gaf ekki kost á viðtali en sagði í skriflegu svari til RúV að vandamálin með eCall-kerfið hafi ekki komið á óvart. Lokunin sé rekstrarleg ákvörðun fjarskiptafélaganna og á þeirra ábyrgð, en hlutverk stofnunarinnar sé að tryggja að breytingarnar taki mið af almannaöryggi.





