Margir fyrrum bíleigendur hafa fengið rangan reikning fyrir kílómetragjaldi vegna bíla sem þeir eru búnir að selja á árinu. Um er að ræða kerfisvillu hjá Skattinum. Í mörgum tilfellum hefur verið rukkað fyrir nákvæmlega 1.200 kílómetra á hvert ökutæki.
Skatturinn hefur staðfest að um kerfisvillu sé að ræða. Unnið er að leiðréttingu sem mun taka nokkra daga að laga, en kröfurnar eiga að uppfærast fyrir eindagann þann 15. júlí.
Ráðleggingar til fólks
Þeir sem fengu ranga rukkun eru beðnir um að bíða með að greiða þar til krafan hefur verið uppfærð. Þeir sem eru þegar búnir að greiða munu fá inneign á viðkomandi ökutæki.





