Bílaumboðið BL hefur tilkynnt um innköllun á fjórum tegundum Land Rover tengitvinnbifreiða (e. Plug in hybrid). Tegundirnar sem um ræðir eru Land Rover Defender árgerðir 2021-2025, Range Rover Velar, árgerðir 2021-2026, Range Rover Evoque árgerðir 2020-2026 og Land Rover Discovery Sport árgerðir 2020-2025.
Samkvæmt BL er hætta á ofhitnun háspennurafhlöðu sem getur orðið til þess að kvikni í ökutækinu. Ástæðan er óljós en BL mun skipta um háspennurafhlöðu. Ekki er um hættilegan galla að ræða, að segir í tilkynningu frá BL.
Vegna umfjöllunar um innköllun Land Rover bifreiða vill BL koma eftirfarandi á framfæri. Innköllunin nær til samtals sjö bifreiða sem BL flutti inn til landsins. Unnið er að því að hafa samband við eigendur viðkomandi bifreiða og bóka tíma í viðgerð. Áætlað er að búið verði að hringja í alla eigendur fyrir lok dags í dag.
Land Rover hefur ekki gert kröfu um að bifreiðarnar verði teknar úr notkun eða stöðvaðar. Því er öruggt að nota bílana þar til skipt innköllun hefur verið framkvæmd.
Land Rover eigendur geta athugað hvort opin innköllun sé á þeirra bifreið með því að spyrja spjallmennið á landrover.is eða bl.is. Einnig er hægt að sjá hvort innköllun sé á þínum bíl hér.






