Langtímaleiga á bifreið er nokkuð þekkt fyrirbæri á Íslandi. Einstaklingur getur leigt bíl og borgað mánaðalegar greiðslur en fengið flest allt innifalið eins og, dekkjaskipti, almennt viðhald og bifreiðagjöld en það er þó mismunandi eftir fyrirtækjum hvað er innifalið. Kílómetragjald upp að vissu marki er ekki alltaf innifalið. Einnig er algengasti leigutíminn er 12 til 36 mánuðir.
Þegar ég var á rölti um Frederiksberg í Kaupmannahöfn rakst ég á auglýsingu um langtímaleigu á Tesla Model 3. Það sem greip athyglina mína var leiguverðið á bílnum sem var allt frá 2.795 danskar krónur á mánuði miðað við akstur allt að 10.000 km á ári. Það er aðeins meira en 50.000 íslenskar krónur. Hins vegar þarf alltaf að greiða útborgun upp á 20.000 danskar krónur sem eru 380.000 íslenskar krónur. Héðan í frá til að einfalda lesturinn verður talað um öll verð út frá íslensku krónunni.
Heimildir eru fengnar frá vefsíðu sem kallast privatleasingtilbud. Þar er hægt að skoða allskonar bíla til langtímaleigu og hvað verðið á þeim er. Hér verður tekinn smá samanburður á langtímaverðinu í Danmörku og svo á Íslandi. Leigutími er miðaður við 36 mánuði.
Áætlað langtímaleiguverð á Standard útgáfu af Teslu Model 3 (64.5 kWh) er í kringum 58.000 kr á mánuði ef miðað er við 15.000 km á ári. Ef einstaklingar vilja aðeins meiri lúxus þá er áætlað leiguverð fyrir Premiumútgáfu af Model 3 (84.7 kWh) í kringum 81.000 kr á mánuði. Kílómetraverð er ekki innifalið. Annars eins og á Íslandi er mest annað innifalið, eins og almennt viðhald og dekkjaskipti.
Áætlað langtímaleiguverð á Long Range útgáfu af Model 3 (75 kWh) er í kringum 175.000 kr á mánuði ef miðað er við 1.500 km akstur á mánuði (18.000 km á ári) hjá Höldur. Hjá Blue Car er áætlað leiguverð á Model 3 í kringum 180.000 kr á mánuði ef miðað er við akstur allt að 1.500 km á mánuði. Það kemur ekki fram hvaða útgáfa eða stærð rafhlöðu er hjá Blue Car.
Þetta er mjög áhugaverður samanburður og það er því ljóst að það er töluvert dýrara að leigja Teslu Model 3 á Íslandi heldur en í Danmörku.







