Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetur ökumenn, sem það á við, að skipta út nagladekkjunum. Í ljósi tíðarfarsins undanfarið og veðurspár næstu daga er óþarfi að vera á nagladekkjunum núna, en frá og með næstu helgi geta ökumenn bifreiða búnum nagladekkjum, átt von á sekt.
Nagladekkjatímabilið stendur frá 31. október til 15. apríl ár hvert skv. reglugerð. Heimilt er að sekta ökumenn um 20 þúsund krónur fyrir hvert dekk sem er á nöglum.







