Japanska bílafyrirtækið KG Motors gaf út á dögunum nýjan og skemmtilegan rafmagnsbíl sem kallast MiBot. Þessi litli og krúttlegi rafmagnsbíll hefur aðeins eitt sæti og er því ekki hægt að taka farþega með.
Framleiðandinn tekur samt fram að hægt sé að geyma gæludýr í farangursrýminu. Bíllinn er blanda af nútímalegri en einnig retro hönnun, sem minnir á níunda áratuginn. Þessi litli bíll er sérstaklega hannaður fyrir þröngar götur í Japan, en bíllinn er 1,5 metrar á hæð, 1,1 metri á breidd og 2,5 metrar á lengd. Þetta væri flottur bíll fyrir skrepp akstur, t.d. út í búð.
Drægni allt að 100 km/klst
Hraði og kraftur er ekki eitthvað sem má finna í MiBot. Gefið er upp að hámarkshraðinn sé í kringum 60 km/klst og með drægni allt að 100 km/klst. Það er enginn að fara í kappakstur á þessum bíl. Það tekur u.þ.b. fimm tíma að hlaða bifreiðina.
Stærðin á bílnum gerir ökumanni kleift að geta nánast lagt í hvaða stæði sem er, það er draumur margra. Hins vegar þá má hámarksþyngd farangurs má ekki vera meiri en 45 kg, sem getur verið vesen fyrir marga. Það fylgir þó ákveðinn lúxus búnaður með bílnum eins og hiti í sætum, snertiskjár og góðir hátalarar.
2.250 pantanir komnar í maí
Í maí hafði framleiðandinn fengið um 2,250 pantanir á bílnum, en þeir ætluðu ekki að framleiða svona marga fyrst. Þessir minni bílar eru mjög vinsælir í Japan. Við munum líklega ekki sjá þennan bíl hér á landi á næstunni, en ef fólk er á leið til Japans þá má endilega hafa auga með þessum.