Nýr sportjeppi frá Hongqi kemur á íslenskan markað

Lestími: < 1 mín

Kínverska lúxusbíla fyrirtækið Hongqi hefur kynnt nýjan rafdrifinn sportjeppa, EHS5, sem er ætlaður fjölskyldum og kaupendum sem leggja áherslu á gott rými, tæknibúnað og öryggi. EHS5 kemur með miklum öryggisbúnaði og hefur hlotið fimm stjörnur í Euro NCAP-prófunum. Öryggisbúnaðurinn býður m.a. upp á sjálfvirka neyðarhemlun, akreinavara með stýrisinngripum, blindsvæðis viðvörun, árekstrarvarnir og skynvæddann hraðastilli. 

Orkugeta rafhlöðunnar er 85 kWh og skilar allt að 522 kílómetra drægni samkvæmt WLTP staðli. Það er stuðningur fyrir hraðhleðslu allt að 265 kW, sem gerir bílnum kleift að hlaða rafhlöðuna úr 10% í 80% á u.þ.b. 20 mínútum við kjöraðstæður.

Útlit bílsins er í senn látlaust og fágað með panorama glerþaki og rafdrifnum afturhlera. Það má einnig finna aðfellanleg hliðar handföng, rafdrifna og upphitaða hliðarspeglar og aðkomulýsingu. Innra rýmið endurspeglar lúxusáherslur Hongqi, með rafdrifnum framsætum sem bjóða bæði upp á hita og loftkælingu, hita í stýri sem og aftursætum. 

Hongqi EHS5 býður upp á fjölbreyttann tæknibúnað, það má m.a. finna 15,6 tommu snertiskjá, 360 gráðu myndavél, fjarlægðarskynjara að framan og aftan og gott hljóðkerfi. Það er stuðningur fyrir Apple CarPlay og Android Auto og einnig hægt að fá íslenskt leiðsögukerfi, raddstýringu og þráðlausa farsímahleðslu. 

Bíllinn hefur þegar verið sýndur á alþjóðlegum bílasýningum og verður frumsýndur hjá BL á næstu vikum.

Deila grein: