Umferð dregst líka saman á höfuð­borgar­svæð­inu

Lestími: < 1 mín

Umferðin í mars á höfuðborgarsvæðinu dróst saman um nærri þrjú prósent í mars mánuði. Þetta er töluverður samdráttur en minni en sá sem mældist á Hringivegi í sama mánuði. Ýmsar ástæður liggja eflaust að baki en til dæmis er líklegt að erfitt tíðarfar hafi leitt til samdráttar. Það má sjá á miklu minni umferð óveðursdaginn 26. Mars að því að er fram kemur í tölum frá Vegagerðinni.

Milli mánaða 2025 og 2026
Talsverður samdráttur varð í umferð á höfuðborgarsvæðinu, í mars miðað við sama mánuð á síðasta ári ef marka má þrjú lykil mælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu. Alls mældist um 2,8% samdráttur, fyrir mælisniðin þrjú.  Þetta er í takt við það sem gerðist á Hringvegi en er þó heldur minni samdráttur.

Öll sniðin þrjú sýndu samdrátt en mest dróst umferð saman um mælisnið ofan Ártúnsbrekku (-4,9%) og minnst um mælisnið á Reykjanesbraut (-1,4%).

Umferð eftir vikudögum 2026
Mesta umferðin var á miðvikudögum en minnst var ekið á sunnudögum, í mars mánuði.

Umferð dróst saman í öllum vikudögum en mest á fimmtudögum. En fimmtudaginn 26. mars sl. dróst umferð saman um 40% vegna óveðurs, sem þá gekk yfir höfuðborgarsvæðið.

Umferð frá áramótum
Nú hefur umferð dregist saman um 0,3%, frá áramótum, en leita þarf aftur til ársins 2022 til að finna samdrátt, í umferðinni á þessu tímabili.

Deila grein: