Hvítasunnuhelgin er mikil ferðahelgi og því mikilvægt að ferðalangar viti af lokun Hvalfjarðarganga vegna framkvæmda við nýja lýsingu að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni.
Lokað:
- Frá klukkan 21:30 fimmtudaginn 21. maí til klukkan 6:00 á föstudagsmorgun
- Frá klukkan 21:30 sunnudaginn 24. maí til klukkan 6:00 á mánudagsmorgun
- Frá klukkan 21:30 mánudaginn 25. maí til klukkan 6:00 á þriðjudagsmorgun
Opið:
- Aðfaranótt laugardags
- Aðfaranótt sunnudags
Framkvæmdir hafa staðið yfir í Hvalfjarðargöngum að nóttu til frá 7. apríl sl. Unnið er að endurnýjun á öllum lýsingarbúnaði ganganna sem hefur verið í notkun frá því að göngin voru opnuð árið 1998. Framkvæmdir í jarðgöngum eru flóknar og fara fram í þröngu rými og því er nauðsynlegt að loka göngunum meðan á þeim stendur.
Upphafleg verklok voru áætluð 29. maí og stefnir allt í að sú tímaáætlun muni standast.
Verkið er því á áætlun og í byrjun vikunnar var búið að setja upp öll ljós á akstursleiðum í göngunum. Þá var búið að taka niður 85% af gömlum strengjum. Þetta er mikið magn eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Þá er unnið að ýmsum öðrum verkefnum, eins og að setja upp stiga og ljós í útskotum, draga strengi og tengja, vinna í töflurýmum og uppsetningu fleiri vinnuljósa.
Í þessari viku verður lokið við að taka niður gömlu ljósin og strengina og haldið áfram með vinnu á stigum, í útskotum og við töflur í tæknirýmum ásamt ýmsu fleiru.







