Þegar stórar tæknibreytingar eiga sér stað þá fellur yfirleitt eldri tækni úr gildi, sem dæmi má benda á að sjálfskiptingin er sífellt að verða vinsælli, sérstaklega með tilkomu rafmagnsbíla. Þá hafa beinskiptir bílar verið á niðurleið í eftirspurn og framleiðslu. Það er einnig hægt að taka bílpróf einungis á sjálfskiptum bíl. Einhverjir eru ef til vill ánægðir með þessa þróun þar sem mörgum finnst þægilegra að keyra sjálfskipta bíla frekar en beinskipta.
Hyundai virðist ekki vilja sjá beinskiptinguna deyja út
Hyundai virðist ekki vilja sjá beinskiptinguna deyja út og hafa verið að þróa sjálfvirka beinskiptingu fyrir rafmagnsbíla með alvöru gírstöng. Þessi hugmynd hefur fengið nafnið gervi beinskipting. Þeir hafa sótt um einkaleyfi (e. Patent) fyrir hugmyndina. Í stuttu máli er þetta búnaður sem notar skynjara, gorma og segla til að herma eftir hreyfingu og tilfinningu raunverulegrar gírstangar, án þess að notast við raunverulega gíra. Það kemur fram í skýrslunni, sem Hyundai undirbjó fyrir einkaleyfið, að þeir vilja að skiptingin verði alveg eins og raunveruleg beinskipting með fjöðrum og mótstöðu. Sérstaklega þar sem markmiðið er að gefa ökumönnum raunverulega upplifun.
Hyundai vill framleiða skiptingu sem getur hegðað sér eins og beinskipting þegar ökumaður vill en að hægt sé að færa sig yfir í sjálfskiptingu ef ökumaður vill. Það gæti komið sér vel í morgun traffíkinni.
Aðrir bílaframleiðendur að hugsa það sama
Þótt Hyundai hafi sótt um einkaleyfi þýðir ekki að þetta ekki endilega að hugmyndin verði að veruleika. Bílaframleiðendur sækja oft um einkaleyfi fyrir hugmyndum sem verður svo ekkert úr. Aðrir bílaframleiðendur eru farnir að huga að einhvers konar beinskiptingu fyrir rafmagnsbíla, sem er áhugaverð hugmyndafræði. Þetta er skemmtileg hugmynd þar sem margir eru enn aðdáendur beinskiptingarinnar og verður áhugavert að fylgjast með þessari hugmynd þróast.







