Rannsókn FIA undirstrikar ávinninginn af einkasamgöngum

Lestími: 4 mín

Ný rannsókn á vegum FIA (Alþjóðasamtaka bifreiðeigenda) dregur fram þann mikla persónulega ávinning sem vélknúin ökutæki í einkaeigu veita einstaklingum. Þetta á sérstaklega við um aðgengi, þægindi og þátttöku í samfélaginu. Rannsóknin byggir að mestu á gögnum frá Evrópu og einnig öðrum svæðum. Rannsakað var hvernig bílar og bifhjól veita aukið aðgengi að fjölbreyttum störfum, þjónustu og daglegum athöfnum. Einnig var kannað  hvað mótar persónulegt samgönguval neytenda .

Hagkvæmasti samgöngumátinn

Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að einkabíllinn og aðrar vélknúnar einkasamgöngur eru almennt hagkvæmasti samgönguvalkosturinn. Samkvæmt rannsókninni veita bílar umtalsvert betra aðgengi að nauðsynlegri þjónustu, svo sem heilbrigðisþjónustu og matvöruverslunum, sérstaklega í dreifbýli þar sem almenningssamgöngur eru oft takmarkaðar. Í Evrópu getur fólk sem hefur bíl til afnota léttilega náð til fleiri áfangastaða innan tiltekins ferðatíma samanborið við þá sem reiða sig alfarið á almenningssamgöngur. Skýrslan undirstrikar einnig að aðgengi að atvinnu er jafnan mun meira á bíl. Rannsóknir sýna að hægt er að komast í mun fleiri störf innan 30 mínútna í samanburði við aðra ferðamáta.

Auk hagnýts aðgengis bendir skýrslan á ýmsa viðbótarkosti sem tengjast persónulegum samgöngum. Þar á meðal eru sveigjanleiki, þægindi, áreiðanleiki og sjálfstæði, sem margir neytendur meta mikils þegar þeir velja ferðamáta. Rannsóknin bendir á að þessir þættir skýri hvers vegna einkanotkun ökutækja er nú sem fyrr helsti valkosturinn þvert á mismunandi svæði og tekjuhópa. Fjöldi ökutækja á heimsvísu hefur haldið áfram að aukast á undanförnum árum, sérstaklega í vaxandi hagkerfum. Þetta endurspeglar mikla eftirspurn eftir einstaklings samgöngum samfara hækkandi tekjum.

Skilvirk samgöngusvæði

Rannsóknin leggur áherslu á að skilvirkustu samgöngukerfin séu þau sem skapa jafnvægi á milli einkasamgangna á ökutækjum, almenningssamgangna, virkra ferðamáta og vel skipulagðrar byggðaþróunar. Þótt bílar veiti oft mesta einstaklingsbundna aðgengið, sýnir rannsóknin að borgir með fjölbreytta samgönguvalkosti og þéttari landnotkun hneigjast til að ná betri heildaraðgengi. Horft til framtíðar er búist við að frekari þróun samgönguvalkosta hafi áhrif á kosti einkabílsins. Nýir samgöngumátar og tækni munu auka valkosti vegfarenda allt frá deili- og örsamgöngum í dag til sjálfkeyrandi ökutækja innan fárra ára. Ný samgöngutækni mun draga úr þægindum bílferða samanborið við aðrar samgöngur.

Fyrir neytendur undirstrika niðurstöðurnar það mikilvæga hlutverk sem persónulegar samgöngur gegna enn þá varðandi aðgengi að atvinnu, þjónustu og félagslegum tækifærum. Jafnframt undirstrika þær þörfina fyrir samgöngukerfi sem bjóða upp á fjölbreytt úrval af hagkvæmum og aðgengilegum samgönguvalkostum.

Niðurstöður rannsóknarinnar undirstrika þörfina fyrir samgöngukerfi sem bjóða upp á fjölbreytt úrval af hagkvæmum og aðgengilegum samgönguvalkostum.

Tenging við Ísland

Niðurstöður þessarar rannsóknar FIA (sem FÍB er aðili að), snerta mörg heit mál i samfélagsumræðunni á Íslandi í dag.

Dreifbýlið og landfræðilegar áskoranir

Skýrslan nefnir sérstaklega að í dreifbýli sé bíllinn oft eini raunhæfi kosturinn til að nálgast heilbrigðisþjónustu og verslun. Hér á landi er þetta raunveruleikinn. Vegalengdir milli staða eru oft miklar, veðurfar er krefjandi og almenningssamgöngur á milli landshluta (eða innan sveita) eru oft mjög takmarkaðar eða dýrar. Fyrir fólk á landsbyggðinni er einkabíllinn ekki lúxus heldur nauðsyn.

Atvinna og ferðatími á höfuðborgarsvæðinu

FIA bendir á að fólk hafi aðgengi að mun fleiri vinnustöðum innan 30 mínútna á bíl en með almenningssamgöngum. Þrátt fyrir mikinn vilja stjórnvalda til að fjölga þeim sem nota strætó eða virka ferðamáta, sýna innlendar kannanir um ferðavenjur á höfuðborgarsvæðinu að bíllinn er enn lang skilvirkasti kosturinn fyrir flesta til að komast til og frá vinnu. Skipulag höfuðborgarsvæðisins byggðist upp í kringum bílinn og íbúðahverfi og atvinnusvæði eru víða mikið aðskilin.

Sveigjanleiki, veður og sjálfstæði

Kostir einkabílsins að mati neytenda í rannsókninni eru m.a. sveigjanleiki, þægindi og áreiðanleiki. Þetta rímar vel við þarfir margra hér á landi. Einkabíllinn í vetrartíð, snjókomu, roki og hálku, veitir öryggi og skjól umfram flesta aðra samgöngumáta. Skutl með börn á leikskóla milli hverfa og á margskonar æfingar samhliða ýmsri umsýslu og innkaupum eftir vinnu bætir sveigjanleika, frítíma og eykur samverustundir fjölskyldna.

Jafnvægi og framtíðin

Lokakafli fréttarinnar um rannsókn FIA leggur áherslu á mikilvægi þess að jafnvægi sé á milli einkabílsins, almenningssamgangna og þéttingar byggðar. Þetta stemmir við umræðuna hér heima. Það var mikið fjallað um þéttingu byggðar og mikilvægi öflugra almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar. Það verður að tryggja fjármagn og forgangsröðun uppbyggingar innviða vegna bílaumferðar í Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Þetta á við um  mislæg gatnamót, göng undir stofnæðar, stokka, ljósastýringar og Sundabraut. Þessar mikilvægu áherslur hafa verið vanræktar í áraraðir.

Ísland er framarlega í rafvæðingu bílaflotans. Rannsókn FIA styður við þá sýn að umhverfisvænni ökutæki ógni ekki umhverfinu. Með orkuskiptum geta  Íslendingar haldið þeim persónulegu gæðum og aðgengi sem skýrslan nefnir og lágmarkað umhverfisáhrifin.

Rannsókn FIA staðfestir það sem FÍB og stór hluti íslenskra neytenda hafa bent á. Einkabíllinn er lykilþáttur í lífsgæðum og efnahag fólks. Áskorunin næstu árin er að samþætta fjölskyldubílinn inn í nútímalegt, grænt og fjölbreytt samgöngukerfi.

Evrópskar borgir

Meðaltal aðgengis eftir samgöngumáta í 82 evrópskum borgum.

Heimild: Útdráttur úr töflu 5 í skýrslu Alþjóðasamgönguráðsins (International Transport Forum), 2019.

Taflan sýnir þann fjölda fólks sem hægt er að ná til að meðaltali innan 15, 30 og 45 mínútna.

Í þeim 82 evrópsku borgum sem voru til rannsóknar getur einstaklingur sem býr í sjálfri borginni náð til að meðaltali 50.000 manns innan 15 mínútna á einkabíl. Með almenningssamgöngum er þessi fjöldi 33.000 manns. Hlutfallið þarna á milli er 1,5. Þetta þýðir að á einkabíl getur einstaklingur í miðborgarsvæði náð til 50% fleiri einstaklinga en sá sem notar almenningssamgöngur.

Á atvinnusóknarsvæðinu (e. commuting zone), sem er víðfeðmara svæði í kringum borgina, aukast yfirburðir einkabílsins enn frekar. Einstaklingur sem notar bíl á atvinnusóknarsvæði borgarinnar getur náð til 5,1 til 7,6 sinnum fleiri einstaklinga en sá sem notar almenningssamgöngur á sama svæði.

Deila grein: