Yfir hásumarið er heimilt að leggja ferðavögnum á bílastæðum við grunnskóla Akureyrarbæjar á meðan skólarnir eru lokaðir vegna sumarleyfa.
Yfir hásumarið er heimilt að leggja ferðavögnum á bílastæðum við grunnskóla Akureyrarbæjar á meðan skólarnir eru lokaðir vegna sumarleyfa að því er fram kemur á vefsíðu Akureyrarbæjar.
Heimildin gildir þar til starfsfólk grunnskólanna snýr aftur til starfa í byrjun ágúst. Bent er á að þar sem mikil umferð verður á bílastæðunum á meðan N1 mótið stendur yfir er æskilegt að ferðavagnar verði færðir af stæðunum á þeim tíma.
Athygli er vakin á því að þessi heimild gildir ekki við Brekkuskóla og Glerárskóla. Við Brekkuskóla er mikil umferð vegna Sundlaugar Akureyrar og líkamsræktarstöðvar í nágrenninu og við Glerárskóla vegna Glerárlaugar. Mikilvægt er því að bílastæðin við skólana séu áfram aðgengileg gestum þessara mannvirkja.
Ekki er leyfilegt að gista á bílastæðunum.







