Innköllun: Íkveikjuhætta Jeep Wrangler og Grand Cherokee 4xe

Lestími: 3 mín

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) birti á föstudaginn sl. tilkynningu um innköllun á vef sínum Vöruvaktinni fyrir Jeep Wrangler 4xe og Grand Cherokee 4xe vegna hættu á íkveikju. Innköllunin er hluti af mun stærri innköllun sem nær til Bandaríkjanna og Evrópu og tekur samtals til um 322 þúsund bifreiða af þessum gerðum.

Eigendur eru hvattir til að fara með bíla sína til skoðunar hjá umboðsaðila, þar sem rafhlaðan er metin og eftir atvikum hugbúnaður uppfærður eða rafhlöðu skipt út.

Jeep Wrangler 4xe

Bílar kyrrsettir vegna tafa á rafhlöðum

Umtalsverðar umræður hafa skapast meðal eigenda á samfélagsmiðlum um málið. Samkvæmt svörum sem eigendur hafa fengið frá Íslensk Bandaríska ehf. (Ísband) umboðsaðila Jeep á Íslandi, eru tafir á afhendingu nýrra rafhlaðna. Það þýðir að þeir bílar sem koma til skoðunar og greinast með bilaða rafhlöðu eru sjálfkrafa kyrrsettir með hugbúnaðarlæsingu frá Jeep (Stellantis) og bíllinn verður þá ónothæfur þar til rafhlaðan hefur verið endurnýjuð.

Leiðbeiningar Jeep til eigenda eru skýrar: hætta skal að hlaða bílinn og forðast að leggja honum nálægt mannvirkjum (alls ekki í bílastæðahúsum eða bílakjöllurum), þar sem aukin hætta er talin á að eldur geti kviknað í bílnum.

Grand Cherokee 4xe

Að minnsta kosti þrjú eldsvoðatilvik þekkt hér á landi

FÍB er kunnugt um að minnsta kosti þrjú tilvik þar sem kviknað hefur í Jeep Wrangler 4xe hér á landi. Ekki hefur fengist staðfest hvort eldsvoðarnir tengist umræddri innköllun, en í öllum tilvikunum eru merki um að eldurinn hafi átt upptök sín um miðbik bílsins þar sem rafhlaðan er staðsett undir aftursæti.

Fyrirspurn FÍB

FÍB hafði samband við HMS í mars og síðan aftur í nóvember 2025 og vakti athygli á innköllun sem þá þegar hafði verið birt á opinberri innköllunarsíðu Evrópusambandsins Safety Gate í mars 2025 án þess að nokkuð hefði verið aðhafst hér á landi. Í kjölfar ábendinga FÍB til Ísband og HMS birtist tilkynning á Vöruvaktinni þar sem vakin var athygli á fyrirhugaðri innköllun og því lofað að haft yrði samband við eigendur.

Í lok júní síðastliðnum sendi FÍB á ný fyrirspurn til HMS og Ísbands og óskaði eftir stöðu málsins. Þar kom í ljós að ekkert formlegt erindi hafði enn verið sent til eigenda þrátt fyrir alvarleika málsins, og að um 91 bifreið hafi verið þjónustuð fram að því. Í kjölfar þessara ábendinga FÍB birtist ný tilkynning á Vöruvaktinni þar sem innköllunin var ítrekuð og eigendur hvattir til að hlaða ekki drifrafhlöður bíla sinna og leggja þeim í öruggri fjarlægð frá mannvirkjum.

Þá mun Ísband hefja innkallanir af auknum krafti um miðjan ágúst. Haft verður samband við eigendur þeirra bíla sem fluttir hafa verið inn til landsins framhjá umboði, svo fremi sem að þeir séu skráðir í kerfum Ísband þar sem eigendur hafa áður sótt þjónstu hjá umboðinu.

Eigendum er ráðlagt að hlaða bílana ekki fyrr en viðgerð hefur farið fram og notast við bensín til aksturs en eldhætta minnkar eftir því sem hleðslustaða rafhlöðunnar lækkar. Jafnframt er þeim ráðlagt að leggja ökutækjunum utandyra og fjarri mannvirkjum

Fjöldi bíla og óvissa um „gráa markaðinn”

Samkvæmt tilkynningu HMS er um 433 bíla að ræða. Á tölfræðivef Samgöngustofu kemur fram að alls hafi 661 bílar af þessari gerð verið fluttir inn til landsins. Af þessum bílum komu 245 til landsins án aðkomu Jeep umboðsins.

Í svari HMS í nóvember 2025 vegna áhyggna FÍB um tilkynningu til eigenda einkainnfluttra Jeep bifreiða sagði að stefnt væri að því að senda þessum eigendum formlega tilkynningu inn á Ísland.is. Þessar tilkynningar virðast enn vera á vinnslustigi. Sennilega eru flestir eigendur þessar bíla ómeðvitaðir um alvarleika málsins þrátt fyrir öryggisinnköllun í langan tíma.

Veikleikar í innköllunarferlinu

FÍB hefur áður lýst yfir áhyggjum af því hvernig staðið er að öryggisinnköllunum bifreiða hér á landi, sérstaklega þegar kemur að bílum sem fluttir eru inn framhjá hefðbundnu umboði. Félagið hefur talað fyrir því að tengja innkallanir við ökutækjaskrá og aðalskoðun, þannig að skoðunarstofur geti brugðist við í samræmi við alvarleika hverrar innköllunar. Í mars síðastliðnum boðaði FÍB til fundar með HMS, Samgöngustofu og Bílgreinasambandinu um málið, þar sem allir fundarmenn tóku undir mikilvægi þess að finna þessu betri farveg og eru ferlar þar af lútandi í skoðun.

Samkvæmt EES-reglum bera bílaframleiðendur ábyrgð á að tilkynningar um öryggisinnköllun berist til neytenda, en hér á landi er það í höndum umboða að koma þeim til eigenda, og hins opinbera þegar enginn umboðsaðili kemur að innflutningi bílsins. Tenging við ökutækjaskrá myndi einfalda þetta verklag verulega, meðal annars með sjálfvirkum tilkynningum í gegnum Ísland.is.

Hvað eiga eigendur að gera?

FÍB hvetur eigendur Jeep Wrangler 4xe og Grand Cherokee 4xe að kynna sé málið og bregðast við á viðeigandi hátt til að fyrirbyggja tjón og hugsanleg slys.

Ef þú hefur ábendingu eða býrð yfir frekari upplýsingum um málið er velkomið að senda póst á bjorn@fib.is.

Deila grein: