Neytendastofa sektar fjögur bílastæðafyrirtæki

Lestími: 2 mín

Neytendastofa hefur tekið ákvarðanir í fjórum málum sem varða upplýsingagjöf og viðskiptahætti fyrirtækja sem sinna bílastæðaþjónustu í tengslum við gjaldskyld bílastæði. Í ákvörðununum komst stofnunin að þeirri niðurstöðu að félögin hafi brotið gegn lögum og reglum sem stofnunin hefur eftirlit með. Þá hafði eitt fyrirtækjanna brotið gegn fyrri ákvörðun Neytendastofu.

Brot fyrirtækjanna voru margvísleg og fólust meðal annars í rangri upplýsingagjöf um greiðslulausnir, ófullnægjandi merkingum um gjaldskyldu, skorti á verðupplýsingum og því að upplýsingar um vangreiðslugjald voru ekki birtar með áberandi og auðsjáanlegum hætti.

Stjórnvaldssektirnar ekki háar
Neytendastofa taldi tilefni til að beita stjórnvaldssektum í málunum og námu sektarfjárhæðirnar frá 200.000 til 400.000 kr. Gerð var úttekt á upplýsingagjöf og viðskiptaháttum fjögurra fyrirtækja: Sannra landvætta, sem sjá um rekstur þriggja bílastæða á landsbyggðinni, Kvasis lausna, sem reka 10 bílastæði víða um land, bílastæðin í bílakjallaranum Hamraborg og Landspítalanum á Hringbraut í umsjá Green parking, og bílastæða Isavia innanlandsflugvalla, á Akureyrarflugvelli og Egilsstaðaflugvelli.

Í úrskurði Neytendastofu kemur fram að fyrirtækið Sannir landvættir hafi með starfsháttum sínum viljandi villt fyrir um viðskiptavinum, vangreiðslugjald ekki birt með áberandi og auðsjáanlegum hættu á upplýsingaskiltum bílastæðanna. Þeim var gert að greiða 250.000 krónur.

Neytendastofa taldi villandi að Isavia innanlandsflugvellir auglýstu „sjálfvirka gjaldtöku“ án þess að skýra að notendur þyrftu sjálfir að virkja hana. Þeim var gert að greiða alls 200.000 krónur.

Green parking var gert að greiða 400.000 krónur þar sem Neytendastofa taldi að fyrirtækið hefði ekki farið að fyrri ákvörðun sinni. Upplýsingar um raunveruleg gjöld væru enn ófullnægjandi og merkingar á sumum gjaldsvæðum gátu valdið ruglingi.

Fyrirtækið Kvasir lausnir, var sektað vegna margvíslega annmarka á upplýsingagjöf. Í ákvörðuninni kemur fram að fyrirtækið hafi veitt villandi upplýsingar um greiðsluleiðir og aukagjöld, merkingar um gjaldskyldu hafi einnig verið ófullnægjandi og verðskrár ekki nægilega sýnilegar.

Isavia að fullu í eigu íslenska ríkisins

Þess má geta að Isavia ohf. er opinbert hlutafélag og er að fullu í eigu íslenska ríkisins. Fjármála- og efnahagsráðuneytið fer með hlut ríkisins í félaginu og fer með eigandavaldið. Félagið er svokallað ohf. (opinbert hlutafélag), sem þýðir að það er í eigu hins opinbera en rekið á viðskiptalegum grundvelli samkvæmt einkamálarétti.Isavia á og rekur flugvelli landsins, þar á meðal Keflavíkurflugvöll, og stýrir flugheimildum og flugleiðsögnum á stóru svæði yfir Norður-Atlantshafinu.

Það vekur athygli að það hefur gerst áður að Isavia, sem er að fullu í eigu íslenska ríkisins eins og áður kom fram, hafi verið sektað eða fengið á sig úrskurði vegna fyrirkomulags á gjaldskyldum bílastæðum sínum, sérstaklega við Keflavíkurflugvöll.

Neytendastofa sektaði Isavia um 500.000 krónur vegna brota á lögum um vandaða viðskiptahætti og reglum um verðmerkingar á bílastæðum flugvallarins.

Deila grein: