Sala á rafbílum Toyota eykst í Bandaríkjunum

Lestími: < 1 mín

Toyota hefur ekki verið að flýta sér að rafvæða bílaflotann sinn eins og aðrir bílaframleiðendur. Bílaframleiðandinn hefur núna tvöfaldað söluna á rafmagnsbílum í Bandaríkjum frá 1. janúar til 30. júní. Samkvæmt heimildum hafa þeir selt 21.855 rafmagnsbíla á þessu tímabili sem er 136% hækkun miðað við sama tímabil í fyrra. 

Kraftur var í sölunni á öðrum ársfjórðungi

Vinsælasti rafbíll fyrirtækisins er áfram bZ4X, sem seldist í 17.553 eintökum fyrri hluta ársins. Hinn nýi Toyota C-HR+ seldist í 3.748 eintökum og bZ4X Woodland, sem hefur nýlega verið kynntur, bætti við 554 seldum bílum. Sérstaklega mikill kraftur var í sölunni á öðrum ársfjórðungi (apríl til júní), en þá jókst rafbílasala Toyota um heil 225% á milli ára.

Þessi mikli vöxtur Toyota á sér stað á sama tíma og breytingar verða á kauphegðun í Bandaríkjunum. Meðalverð á nýjum rafbíl er tæplega 55.000 dollarar sem er í kringum 7.000.000 kr. Til samanburðar er meðalverð notaðra rafbíla um 37.000 dollarar sem er í kringum 4.600.000kr. Sala nýrra rafmagnsbíla hefur dregist saman um 22% á milli ára á öðrum ársfjórðungi á meðan sala notaðra rafmagnsbíla hefur aukist um 29%. 

Kauphegðun neytenda virðist leita í ódýrari valkost

Kauphegðun neytenda virðist leita í ódýrari valkost þegar kemur að rafmagnsbílum. Þessi þróun hefur heppilega komið sér vel fyrir Toyota þar sem rafbílarnir þeirra eru í ódýrari kanntinum. Dýrt eldsneytisverð og bann á kínverskum rafmagnsbílum eru einnig líklegir þættir í þessari þróun.

Deila grein: