Nýr pallbíll frá BYD kemur á evrópskan markað

Lestími: < 1 mín

Kínverski bílaframleiðandinn BYD hefur tilkynnt að pallbíllinn þeirra, sem gengur undir nafninu Shark, mun koma á evrópskan markað. Bíllinn er áætlaður að koma á markað undir lok árs. Það sem er áhugavert er að BYD Shark er ekki 100% rafmagnsbíll, heldur tengiltvinnbíll (e. Plug-in hybrid). 

BYD Shark hefur tvo rafmótora, bæði að framan og aftan, og 1,5 lítra túrbó bensínvél sem skilar bílnum 430 hestöfl og 650 Nm togi. Bíllinn er aflmikill og er 5,7 sekúndur frá kyrrstöðu í hundrað. Drifkerfið í bílnum býður upp á fjórar mismunandi stillingar fyrir ólíkar aðstæður: sandur, drulla, snjór og möl.

Pallbíllinn er búinn 32,2 kWh rafhlöðu, sem kallast Blade. Rafhlaðan skilar bílnum allt að 90 km drægni á hreinu rafmagni, sem ætti að duga í og úr vinnu. Heildardrægni bílsins er í kringum 674 km. Samkvæmt bílaframleiðanda tekur 21 mínútu að hlaða úr 30% í 80% með hraðhleðslu. 

Hann kom fyrst á markað í Mexíkó árið 2024 og hefur farið inn á aðra markaði í Suður-Ameríku. Til þessa hefur pallbíllinn staðið sig best í Ástralíu og er hann frekar vinsæll þar. Það er óvíst hvort bíllinn kemur á íslenskan markað. 

BYD er að verða þekkt merki á evrópskum markaði en helst þekktir fyrir rafmagnsbílana sína. Það er því spurning hvort vörumerkið hafi sama traust þegar kemur að tengiltvinntækni. Það verður áhugavert að sjá hvort BYD Shark reynist alvöru aflakló eða bara smásíli í evrópskum pallbíla sjó. 

Deila grein: