Stórt klúður hjá BYD í Ástralíu þar sem bílaframleiðandinn afhenti yfir 1.200 eintök af bílum sem framleiddir voru árið 2025 þegar viðskiptavinir óskuðu eftir og keyptu 2026 árgerð. Viðskiptavinir tóku því eftir að ,,nýi” bíllinn sem þeir hefðu óskað eftir var í raun árs gamall.
BYD í Ástralíu kennir innri stjórnunar mistökum um. Bílaframleiðandinn fullyrðir að kerfið hafi ranglega skráð þann dag sem bílarnir voru sendir úr verksmiðjunni, en ekki þann dag sem þeir voru framleiddir.
Af hverju skiptir þetta máli?
Tæknilega séð er enginn munur á 2025 og 2026 árgerðunum þar sem þeir bera sömu ábyrgð, uppfylla sömu reglugerðir og búa yfir nákvæmlega sama vélbúnaði. Hins vegar skiptir framleiðsluár bíls miklu máli á bílamarkaðnum þar sem verð bílsins fellur með hverju ári. Að afhenda kaupanda eldri árgerð en samið var um fellur endursöluvirði bílsins samstundis. Það er ekki rétt að afhenda viðskiptavinum eldri bíla en samið var um, jafnvel þó það munar einungis einu ári. Auk þess fær viðskiptavinur minna úr viðskiptunum til lengri tíma.
Kaupendur í þessu máli geta krafist fullrar endurgreiðslu á kaupverðinu
Stjórnendur reyndu að láta vandamálið hverfa með því að bjóða viðkomandi eigendum bætur upp á 763 dollara sem er rétt undir 100.000 kr. Þegar eigendur og staðbundnir fjölmiðlar mótmæltu þessu tilboði neyddist BYD til að fara aðra leið að þessu máli. Kaupendur í þessu máli geta krafist fullrar endurgreiðslu á kaupverðinu, skipt 2025 árgerðinni fyrir 2026 árgerð eða haldið eldri bílnum og tekið við peninga greiðslunni sem virðist vera minnst spennandi kosturinn.
Ef stór hluti þessara eigenda krefst endurgreiðslu gætu þessi mistök hæglega kostað BYD tugi milljóna dollara á sama tíma og fyrirtækið berst við að anna eftirspurn.







