Ferrari Luce náði sölu markmiðum þrátt fyrir mikla gagnrýni

Lestími: < 1 mín


Luce, fyrsti rafmagnsbíll Ferrari, átti erfiða byrjun á markaðnum. Bíllinn var kynntur í lok maí og fékk mikla gagnrýni á samfélagsmiðlum, þar sem netverjar báru bílinn saman við ódýrari rafmagnsbíla. Hlutabréf bílaframleiðandans féllu um 8% í kjölfarið og leit þetta ekki vel út fyrir Ferrari.

Núna meira en tveimur mánuðum síðar hefur Ferrari Luce náð sölu markmiðum fyrir árið 2026, samkvæmt skýrslu frá Financial Times. Ferrari hefur ekki gefið fram hver talan er en orðið á götunni er að markmiðið var að selja undir 500 eintök á þessu ári.

Samkvæmt heimildum var mikil eftirspurn frá kínverskum kaupendum, ásamt því sýndu tæknifrumkvöðlar, frá Silicon Valley, bílnum mikinn áhuga. Með Luce er Ferrari að reyna að ná til yngri og efnameiri hóps sem þekkir til rafmagnsbíla. Bílaframleiðandinn vill ekki þrýsta rafmagnsbílnum á núverandi markhópinn sem laðast að eldsneytis Ferrari bílum.

Markmiðið hjá Ferrari er að selja 2500 eintök af Luce fyrir árið 2030, sem er í kringum 600 eintök á ári. Sem verður 5% af sölu bílaframleiðandans. 

Deila grein: