Keyrði 45.000 km á óbreyttum Grenadier

Lestími: < 1 mín

Becky Kim kláraði mikla ævintýraferð þar sem hún keyrði frá syðsta punkti Afríku til nyrsta punkts Evrópu. Hún hóf ferðalagið í Nairobi, Kenía og keyrði í gegnum meira en 60 lönd og endaði ferðina í London, Englandi. Bíllinn sem hún keyrði kallast Grenadier Trialmaster.

Kim keyrði 45.470 km yfir 122 daga með leiðsögumanninum Bonnie Koko. Þau lögðu af stað frá Kenía og keyrðu austurströndina til Suður Afríku og fóru þaðan upp vesturströndina. Á leiðinni tókust þau á við erfitt landslag, þar á meðal hörðum aðstæðum í Kalaharí, Namibíu og Sahara-eyðimörkinni. Þeim tókst einnig að sigrast að sigrast á köldum ís við norðurheimskautsbaug og náðu þannig að komast á nyrsta punktinn í Evrópu sem er Nordkapp í Noregi. 

Eingöngu var notast við hefðbundin kort

Ferðinni var lokið án þess að sérfræðingar kæmu að málinu og eingöngu var notast við hefðbundin kort. Fyrir hvert land sem hún ferðaðist til bætti hún við fána á afturrúðuna sem minnismerki. Ferðalagið endaði hún á Grenadier barnum í London

Bíllinn Grenadier Trialmaster var óbreyttur og reiddi sig eingöngu á staðalbúnað sinn þar á meðal hefðbundnar driflæsingar, hátt loftinntak, BFGoodrich hjólbarðar sem eiga að henta fyrir allskonar landslag og BMW B57 dísil vél, fyrir þetta ævintýri. 

Deila grein: