Heldur í vonina að stjórnvöld lækki á ný virðisaukaskattinn á eldsneyti

Lestími: < 1 mín

,,Ég held enn í vonina um að stjórnvöld lækki á ný virðisaukaskattinn á eldsneyti. Miðað við það sem maður hefur séð í viðtölum við ráðamenn í fjölmiðlum þá sýnist mér að svo verði ekki nema það verði eitthvað innlegg í þessum viðræðum ríkisstjórnarinnar við aðila vinnumarkaðarins,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, í samtali á mbl.is

Tímabundinni lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti lauk um mánaðamótin og hækkaði skatturinn úr 11% í 24% á ný. Lækkunin var liður í aðgerðum ríkisstjórnarinnar gegn verðbólgu og var kynnt í apríl síðastliðnum.

Runólfur segir að aðstæður hafi ekkert breyst frá því ríkisstjórnin tók þá ákvörðun um að lækka virðisaukaskattinn í vor og ef eitthvað er sé staðan verri. Hann segir að meðalverðið á bensíni og dísilolíu í ágúst hafi verið sambærilegt því sem hafi verið í apríl.

„Áhrifin á verðbólgu verða neikvæð að óbreyttu þegar hækkunin byrjar strax að tikka inn í verðlagið,“ segir Runólfur.

Runólfur hefur fylgst vel með eldsneytisverði frá því hækkunin tók gildi um mánaðamótin.

Markaður sem þarf greinilega aðhald

„Miðað við þá álagningu sem var fyrir og það sem er núna þá er þetta greinilega bara virðisaukaskattsbreytingin sem er að skila sér út í verðlagið.“

Hann segir að það sé aukið aðhald með markaðnum af hálfu Samkeppniseftirlitsins og þá hafi FÍB og ASÍ og verkalýðsfélög fylgst vel með eldsneytisverðinu.

„Það eru fleiri augu sem beinast að þessu. Það kom smá kafli þegar skattabreytingarnar áttu sér stað um áramótin þar sem gert var út á það að það væri snör lækkun en þá mátti alveg greina álagningaraukningu. Þetta er markaður sem þarf greinilega aðhald,“ segir Runólfur Ólafsson.

Deila grein: