Fjármála- og efnahagsráðuneytið áformar að gera níu breytingar á lögum um kílómetragjald, meðal annars þannig að hægt verði að lækka gjaldið hafi það augljóslega verið lagt á á röngum forsendum.
Áformin voru birt í Samráðsgátt í gær. Lögin tóku gildi um áramótin og ná til allra ökutækja óháð orkugjafa. Gert er ráð fyrir að breytingarnar taki gildi 1. janúar 2027.
Þá stendur til að undanþiggja tiltekin ökutæki sem ekki eru notuð á vegakerfinu frá gjaldinu og skýra undanþágu björgunarsveita.
Þetta kemur fram í áformum um lagasetningu sem fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur birt. Lög um kílómetragjald tóku gildi 1. janúar síðastliðinn og segir ráðuneytið að reynslan af framkvæmd þeirra gefi tilefni til breytinga.
Meðal þess sem lagt er til er að ríkisskattstjóri fái sérstaka heimild til að lækka álagt kílómetragjald þegar ljóst er að álagningin hefur byggst á röngum forsendum og gjaldið er hærra en ætla mætti að rétt fjárhæð væri.
Einnig á að heimila ökumönnum að skrá nýja stöðu akstursmælis þótt ekki séu liðnir 30 dagar frá síðustu skráningu.
Þá á skuld fyrri eiganda vegna kílómetragjalds ekki lengur að geta komið í veg fyrir að nýr eigandi fari með bifreið í aðalskoðun.
Undanþága björgunarsveita frá kílómetragjaldi verður einnig skýrð nánar
Ráðuneytið hyggst jafnframt undanþiggja ökutæki sem eingöngu eru notuð utan hins almenna vegakerfis. Þar eru sérstaklega nefnd námuökutæki og beltabifreiðar sem aðeins eru notaðar utan vega eða á lokuðum vinnusvæðum auk ökutækja sem eingöngu eru notuð á lokuðum svæðum flugvalla.
Undanþága björgunarsveita frá kílómetragjaldi verður einnig skýrð nánar og til skoðunar er hvort létt bifhjól verði undanþegin gjaldinu.
Kílómetragjaldið verður jafnframt skilgreint með skýrum hætti sem rekstrarkostnaður samkvæmt tekjuskattslögum og tekið fram að gjaldið myndi ekki stofn til virðisaukaskatts.
Áformað er að breytingarnar taki gildi 1. janúar 2027. Ráðuneytið gerir ráð fyrir að fjárhagsleg áhrif breytinganna á tekjur ríkissjóðs verði óveruleg.







