Fréttaveitan BBC hefur staðfest að Top Gear mun kom aftur eftir fjögurra ára pásu. Samkvæmt BBC staðfesti Ed Havard, stjórnandi afþreyingarsviðs, á sjónvarps hátíðinni í Edinborg að þáttaröðin verði endurvakin. Ekki hefur verið greint frá því hvenær þættirnir verða sýndir eða hver verður stjórnandi þáttarins.
Top Gear fór fyrst í loftið árið 1977
Top Gear fór fyrst í loftið árið 1977 og endaði árið 2001. Þá einblíndu þættirnir á fjölbreytt efni tengt bílum, þá sérstaklega bíla umsagnir, umferðaröryggi og neytenda ráðgjöf. Árið 2002 ákváðu Jeremy Clarkson og Andy Wilman að endurvekja Top Gear nema með meiri áherslu á breskum húmor. Með Clarkson voru Richard Hammond og James May. Margir vilja meina að þetta hafi verið gullöld Top Gear þegar þeir voru stjórnendur þáttarins.
Eftir að Clarkson, Hammond og May fóru árið 2015 hefur BBC hefur reynt að fanga sömu stemningu sem hefur ekki gengið vel hingað til. Þremenningarnir náðu mjög vel saman og þeir voru skemmtilegir á skjánnum, burt séð frá bílaspjallinu.
Hver verður nýji þáttastjórnandinn?
Ekki er enn vitað hver mun taka við þáttunum en það eru kenningar um að Jimmy Carr verði næsti stjórnandi Top Gear. Carr er þekktur þáttastjórnandi og því vel þekktur í Bretlandi. Aðal spurningin er samt hvernig BBC ætlar að nálgast nýju endurkomu Top Gear. Þá aðallega hvort þeir ætla að reyna að endurgera Clarkson stemninguna eða fara í aðra átt.







