Umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar samþykkti í vikunni tillögu fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um að gjaldskyldutími bílastæða í miðborg verði styttur í samráði við hagaðila og íbúa. Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar og Miðflokksins sátu hjá við afgreiðslu málsins.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins lögðu fram svohljóðandi bókun:
Breytingar á gjaldskyldutíma á P1- og P2 svæðum
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks samþykkir að gjaldskyldutími á P1- og P2-svæðum verði styttur um eina klukkustund á kvöldin frá 1. október 2026. Gjaldskyldu ljúki því kl. 20 í stað kl. 21 alla daga. Gert er ráð fyrir að þetta fyrirkomulagi gildi út árið 2026.
Breytingin er í samræmi við verkefnalista meirihlutans, þar sem kveðið er á um að gjaldskyldutími bílastæða í miðborginni verði styttur í samvinnu við íbúa og fyrirtæki. Undanfarið hefur átt sér stað óformlegt samráð við íbúa og hagaðila um bílastæðamál og aðgengi að miðborginni.
Heildarendurskoðun gjaldskyldukerfis borgarinnar
Þessi afmarkaða breyting er fyrsta skrefið í því ferli. Fram undan er heildarendurskoðun gjaldskyldukerfis borgarinnar með það að markmiði að einfalda og samræma kerfið og laga það betur að þörfum íbúa, rekstraraðila og gesta miðborgarinnar. Sú vinna verður unnin í formlegu samráði við íbúa og rekstraraðila, meðal annars með könnun á reynslu þeirra og viðhorfum til gjaldskyldu og bílastæðamála. Áhrif breytingarinnar verði metin inn í breytingar og heildarendurskoðun.
Hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar
Þá voru einnig samþykktar breytingar á reglum um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar. Reglur um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar breytist á þann hátt að í þeim þremur ákvæðum þar sem fram kemur setningin: „Frávik frá viðmiðunargildi skulu rökstudd eftir því sem við á“ verði svohljóðandi: „Frávik frá viðmiðunargildi skulu rökstudd“.
Með breytingunum falla almenn bindandi hámarksgildi um fjölda bílastæða við nýbyggingar og endurnýjun byggðar niður. Endurskoðuð viðmiðunargildi verða áfram lögð til grundvallar við mat á bílastæðaþörf, en heimilt verður að víkja frá þeim til fjölgunar eða fækkunar þegar staðsetning, landnotkun, aðstæður og þarfir viðkomandi uppbyggingar gefa tilefni til.
Frávik skulu rökstudd og samgöngumat áfram nýtt. Markmiðið er að tryggja að fjöldi bílastæða ráðist af gagnsæju, málefnalegu og staðbundnu mati í stað ósveigjanlegra hámarksgilda. Afnám hámarksgilda felur ekki sjálfkrafa í sér fjölgun bílastæða en gefur húsbyggjendum færi á að mæta þörfum og kröfum markaðarins. Eftir því sem kostur er verði kaup eða leiga bílastæðis aðskilin frá kaupum eða leigu íbúðar, þannig að kostnaður við stæðin falli á notendur þeirra.
Breytingarnar eru í samræmi við samþykkt borgarstjórnar frá 16. júní 2026 og fela ekki í sér að fallið sé frá markmiðum borgarinnar um breyttar ferðavenjur, skilvirka landnýtingu og vandað borgarumhverfi.







