Ótrúleg saga á bakvið draumabíl Lewis Hamiltons

Lestími: < 1 mín

Lewis Hamilton, breski ökuþórinn sem keppir í Formúlu 1, keypti draumabílinn sinn sem er Ferrari F40. Nú keyrir Hamilton ekki einungis Ferrari á akstursbrautinni heldur einnig á götunni.

Í fyrra seldi Hamilton allt bílasafnið sitt, að hans sögn var ástæðan fyrir því að minnka kolefnisspor sitt og einbeita sér frekar að list. Seinna var hann svo spurður hvort einhver bíll gæti freistað hans aftur og svarið hans var Ferrari F40. Í færslu hans á Instagram tilkynnti hann að þegar hann gekk til liðs við Ferrari á sínum tíma þurfti hann helst að eignast F40.

Fann bíl með áhugaverða sögu

Hamilton vildi finna bíl sem hafði sögu og helst í klassíska Ferrari rauða litnum. Hann fann svo sannarlega bíl með áhugaverða sögu en bíllinn hafði verið óhreyfður í yfir 30 ár. Þegar hann sá bílinn í fyrsta skipti var bíllinn þakin í ryki. Það sem er magnað að bíllinn var aðeins keyrður 69 km og farþegahurðin hafi aldrei verið opnuð að sögn Hamilton.

Það voru 1.315 eintök af F40 framleidd frá árunum 1987 til 1992 og er hann í miklu uppáhaldi hjá bíla áhugamönnum. Það er því mjög einstakt að finna slíkan bíl sem er ekinn svona lítið. Ekki er vitað hvað formúlukappinn borgaði fyrir bílinn.

Stóðst ekki freistinguna að keyra bílinn sjálfur

Hamilton var fyrst ekki viss hvort hann ætti að leyfa bílnum að standa áfram sem safngrip, en á endanum gat hann ekki staðist freistinguna að keyra bílinn sjálfur. Hamilton fór því með bílinn til Ferrari Classiche í Maranello til að láta gera hann upp. Það sem gerir söguna enn magnaðri er að þegar vélvirkjarnir tóku vélina úr bílnum þá var talan 44 stimpluð á vélarblokkina. Talan 44 er keppnisnúmer Hamiltons, sem hann notaði frá því hann var krakki.

Það má segja að þetta eru einhvers konar örlög.

Deila grein: