Nýskráningar fólksbifreiða eru tæplega 5% minni á fyrstu átta mánuðum ársins í samanburði við sama tímabil á síðasta ári. Þegar einstakir mánuðir eru skoðaðir voru flestar nýskráningar í maí en fæstar í febrúar. 51% nýskráninga bifreiða er til ökutækjaleiga og 49% í almenna notkun. Þetta kemur fram í tölum frá Bílgreinasambandinu.
Nýskráningar í nýorkubílum um 90%
Nýskráningar í nýorkubílum er orðnar um 90% það sem af er árinu. Langflestar eru í hreinum rafbílum eða alls 4.338 bifreiðar sem er um 46,4% hlutdeild. Tengiltvinnbílar koma í öðru sæti með 2.114 nýskráningar og hybrid-bílar í þriðja sæti með 1.852 bifreiðar. Á fyrstu átta mánuðum ársins voru nýskráningar í bensínbílum alls 540 og 499 í dísilbílum.
KIA söluhæsta bílategundin
Í einstökum bílategundum eru flestar nýskráningar í KIA, alls 1.222 sem er um 13,1% hlutdeild. Toyota er í öðru sæti með 1.091 nýskráningar og Tesla með 841.







