Nýr Nissan Leaf kominn á íslenskan markað

Lestími: < 1 mín

Nissan Leaf, sem lengi hefur verið einn vinsælasti rafbíll heims, er mættur aftur í glænýrri og glæsilegri útgáfu. Að baki þessum nýja bíl býr yfir 15 ára reynsla Nissan af þróun og framleiðslu rafbíla.

Þegar Nissan Leaf kom fyrst á sjónarsviðið árið 2010 ruddi hann brautina sem fyrsti fjöldaframleiddi rafbíllinn og átti stærstan þátt í að gera rafbíla að raunhæfum kosti fyrir almenning í daglegu lífi. Leaf spilaði lykilhlutverk í að færa rafbílinn inn í daglegt líf fólks og er nú tilbúinn fyrir næsta kafla rafbílasögunnar. Nú snýr hann aftur í spennandi og flottu útliti, auk þess að vera tæknivæddari en áður fyrr.

Bíllinn verður fáanlegur með tveimur rafhlöðustærðum, 52 kWh og 75 kWh. Þetta gerir kaupendum kleift að geta valið á milli hagkvæmrar útgáfu fyrir daglegan akstur og langdrægari útgáfu fyrir meiri sveigjanleika. Stærri rafhlaðan býður upp á að 622 km drægni samkvæmt WLTP staðlinum.

Hægt er að skoða bílinn hjá bílaumboði BL

Deila grein: