Ný rannsókn félags þýskra bifreiðaeigenda ADAC, systurfélags FÍB, sýnir að öryggi dekkja versnar verulega þegar mynsturdýpt minnkar. Dekkin eru samt enn langt frá lögbundinni lágmarksmynsturdýpt upp á 1,6 mm eða 3 mm. Samkvæmt rannsókninni eykst slysahættan verulega í bleytu þegar dekkin geta misst grip og flotið upp í pollum.
ADAC prófaði fimm vinsæl vetrardekk með þrjár mismundandi mynsturdýptir. Ný dekk með um 8 mm mynstur, hálfslitin með 4 mm eftirstandandi mynstri og með 2 mm mynstri. Markmiðið var að kanna áhrif dekkjaslits á aksturseiginleika og öryggi í akstri.
Uppflot í vatni sem liggur á veginum
Niðurstöðurnar sýna að öryggisbresturinn er mestur í bleytu. Bíll á dekkjum með 4 mm mynsturdýpt missir að meðaltali um 12 prósent af viðnámi sínu gegn uppfloti í vatni í beinni akstursstefnu og í beygjum er meðaltapið um 25 prósent. Við 2 mm mynstur hafði þessi skerðing aukist í 22 prósent á beinum vegi og í um 52 prósent í beygjum.
ADAC telur þetta mikilvægar niðurstöður með hliðsjón af krefjandi aðstæðum við akstur í mikilli rigningu, þar sem dekkin þurfa samtímis að standast hemlunar-, hröðunar- og beygjukrafta.

Á nýju dekki (til vinstri) sjást fínu raufarnar enn vel, við 4 millimetra (í miðjunni) sjást þær verr og við 2 millimetra (til hægri) sjást þær varla.
Hemlunarvegalengd lengist
Prófanirnar sýndu einnig að hemlunarvegalengd á blautu undirlagi jókst verulega með auknu sliti. Að meðaltali lengdist hemlunarvegalengdin úr 31,9 metrum með nýju dekki í 37,3 metra þegar mynstrið var komið niður í 2 mm, sem er aukning um rúmlega 5 metra eða 17 prósent.
Neikvæðir aksturseiginleikar í snjó. Viðnám (grip) dekkjanna minnkaði um nær 16 prósent þegar mynsturdýptin var komin niður í 2 mm og hemlunarvegalengd í snjó jókst um rúm 20 prósent.
Mæla með skiptum við 4 mm
Lögbundin lágmarksmynsturdýpt víða í Evrópu er 1,6 mm. Hér á landi er lágmarksmynsturdýpt yfir sumartímann (15. apríl til 31. október) 1,6 mm en 3,0 mm yfir vetrartímann. ADAC segir rannsóknina staðfesta fyrri ráðleggingar félagsins um að skipta um vetrardekk og heilsársdekk þegar mynstrið er komið niður í 4 mm. Þegar mynstrið fer undir 4 mm þá versna öryggiseiginleikarnir hraðar en slitið eitt gefur til kynna.
Mikilvægt fyrir íslenska ökumenn
Þótt rannsóknin hafi verið framkvæmd á vetrardekkjum í Þýskalandi þá eiga niðurstöðurnar vel við íslenskar aðstæður. Blautir vegir, úrkoma og vatn á vegyfirborði eru algengar aðstæður hér á landi. Rannsóknin undirstrikar mikilvægi þess að fylgjast reglulega með mynstradýpt hjólbarða og bíða ekki eftir að lögbundnu lágmarki sé náð áður en skipt er um dekk.







