Ef bíleigandi borgar ekki á réttum tíma fyrir bílastæði við Seljalandsfoss, þá fær hann rukkun í heimabankann fyrir stæðisgjaldinu og við bætast 100 kr. í bankakostnað. Ef þessi sami bíleigandi borgar ekki á réttum tíma við BSÍ, þá fær hann kröfu um stæðisgjaldið plús 5.500 kr. vangreiðslugjald auk 250 kr. bankakostnaðar.
Gagnrýni FÍB og annarra á gjaldskyldufrumskóginn hefur orðið til þess að sums staðar hafa vangreiðslugjöld verið lækkuð. Á síðasta ári var algengt að krafist væri 4.500 kr. í vangreiðslugjald, líkt og hjá Reykjavíkurborg. Bílakjallarinn á Hafnartorgi skar sig þó úr og krafðist 7.000 kr. fyrir að greiða ekki á réttum tíma. Nú hefur krafan frá Hafnartorgi lækkað í 2.850 kr. Á mörgum stæðum sem Parka/MyParking hefur umsjón með er vangreiðslugjaldið 1.960 kr. en var oftast áður 4.500 kr.
Green Parking hefur farið hina leiðina ýmist haldið í 4.500 kr. vangreiðslugjald og jafnvel hækkað það í 5.500 kr. Meðal bílastæða á vegum Green Parking eru stæðin við BSÍ, Landspítalann og Barónsstíg 2-4. Vangreiðslugjald á bílastæði Landspítalans er 4.500 kr. og 5.500 kr. við BSÍ.
Checkit.is er til fyrirmyndar
Eigendur bílastæða sem hafa falið Checkit.is að annast innheimtu bílastæðagjalda eru til fyrirmyndar. Ef bíleigandi borgar ekki fyrir stæðið, þá fær hann kröfu í heimabanka aðeins fyrir því sem hann átti að borga plús 100 til 130 kr. vegna bankakostnaðar.
Checkit annast gjaldtöku í Þingvallaþjóðgarði og við Selafjöruna Ytri Tungu, Seljalandsfoss, Hengifoss, Seltún og Hafnarhólma. Í Reykjavík sér Checkit um bílastæðin á Höfðatorgi og Kirkjusandi. Hægt er að borga sjálfvirkt með Easypark appinu eða í greiðsluvélum. Ef greiðsla berst ekki þá kemur rukkun í heimabanka fyrir stæðisgjaldinu ásamt 130 kr. bankakostnaði. Engin vangreiðslugjöld eru innheimt og ekki frekar aðhafst þó greiðsla berist ekki.







