Nýskráningar nýrra fólksbifreiða á þessu ári eru alls orðnar 10.668. Á sama tíma í fyrra voru þær 11.030 og er því um 3,3% samdrátt að ræða á milli ára af því er fram kemur í tölum frá Bílgreinasambandinu.
Sala á rafbílum á Íslandi hefur verið ágæt á árinu en stendur nú á tímamótum vegna nýrra reglna um ríkisstyrki sem taka gildi 1. nóvember næstkomandi. Stjórnvöld hafa tilkynnt lækkun á styrkjum til kaupa á nýjum rafknúnum fólksbílum.Styrkurinn fer úr 500.000 krónum niður í 400.000 krónur fyrir nýja fólksbíla. Hámarksverð á bílum sem eru styrkhæfir lækkar úr 10 milljónum króna niður í 8 milljónir króna. Þessar breytingar gætu haft áhrif á nýskráningar á næstu tveimur vikum fyrir breytingar.
Hreinir rafbílar eru með 50% hlutdeild
Aðeins hefur dregið úr nýskráningum á haustmánuðum en þær voru mun fleiri framan af árinu. Eftir sem áður eru flestar nýskráningar í nýorkubílum en þæru eru um 90% í heildarsölunni. Hreinir rafbílar eru með 50% hlutdeild í sölunni það sem af er árinu. Nýskráningar í hreinum rafbílum eru alls orðnar 5.431. Nýskráningar í hybrid-bílum eru 2.226 sem er um 20,9 % hlutdeild og í þriðja sæti koma tengiltvinnbílar með 1.957 nýskráningar.
KIA söluhæsta bílamerkið
Söluhæsta bílamerkið er KIA með 1.362 nýskráningar sem er um 12,8% hlutdeild á markaðnum. Toyota er í öðru sæti með 1.295 nýskráningar og Tesla kemur í þriðja sætiju með 995 nýskráningar.







