Vegagerðin hefur samið við Suðurverk hf. og Fossvélar ehf. um framkvæmdir við verkið Hringvegur (1) um Kjalarnes, 2. áfangi, Vallá – Hvalfjörður.
Framkvæmdin felst í breikkun Hringvegar á 5,6 kílómetra löngum kafla frá Vallá að Hvalfjarðarvegi. Núverandi tveggja akreina vegi verður breytt í 2+1 og 2+2 veg með aðskildum akstursstefnum.
Á kaflanum verða byggð tvö hringtorg og ný undirgöng
Á kaflanum verða byggð tvö hringtorg og ný undirgöng við Grundarhverfi og Arnarhamar. Einnig verða núverandi undirgöng við Klébergsskóla lengd. Þá verða gerðir hliðarvegir, áningarstaður og aðstaða til vigtunar ökutækja. Þörf er á að fergja hluta vegstæðisins þó hluti af þeirri undirbúningsvinnu hafi verið fram í fyrsta áfanga breikkunarinnar.
Framkvæmdin felur jafnframt í sér lagningu ræsa og regnvatnslagna, uppsetningu veglýsingar og lagningu strengja fyrir upplýsingakerfi Vegagerðarinnar. Einnig þarf að færa og breyta lögnum veitufyrirtækja. Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Reykjavíkurborgar, Veitna, Ljósleiðarans og Mílu.
Tilboð í verkið voru opnuð 15. september 2026 og var útboðið opið og auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu (EES). Suðurverk hf. og Fossvélar ehf. voru lægstbjóðendur. Tilboðsupphæðin var 4.680.697.303 kr.

Mynd: F.v. Dofri Eysteinsson, frá Suðurverki, Elísabet Edda Guðbjörnsdóttir frá Fossvélum, Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar og Guðmundur Ólafsson frá Suðurverki.






