Unnið verður við malbiksviðgerðir á gatnamótum Vífilsstaðavegar og Hafnarfjarðarvegar í dag á milli klukkan 10 og 13.
Beygjurein frá Vífilsstaðavegi og strætórein verða lokaðar og þrengt verður að umferð á Hafnarfjarðarvegi, að því er kemur fram á vef Vegagerðarinnar.
Frá kl. 14 til 17 í dag verður rampur frá Miklubraut að Réttarholtsvegi lokaður vegna malbiksviðgerða. Vegfarendur eru beðnir um að aka með gát og virða merkingar.
Vegna vinnu við endurbætur á brú yfir Gljúfurá á hringveginum í Borgarfirði má búast við umferðartöfum út nóvember. Hámarkshraði verður takmarkaður við 30 km/klst. meðfram vinnusvæðinu og verður umferð stýrt með umferðarljósum. Vegfarendur eru beðnir að sýna þolinmæði, virða merkingar og aka með gát.






