Íslensku olíufélögin setja met í álagningu

Lestími: 2 mín

Þróun eldsneytisverðs á Íslandi

Verð á bensíni og dísilolíu hefur hækkað verulega frá því að tímabundinni lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti lauk 1. september sl. Endurupptaka fulls virðisaukaskatts hækkaði bensínlítrann um tæpar 25 krónur að meðaltali og dísillítrann um um 28 krónur.

Meðalverð á bensínlítra er nú 266 krónur en var 239 krónur 1. september, sem jafngildir 27 króna hækkun. Á sama tíma hefur hlutfall heimsmarkaðsverðs í útsöluverði bensíns lækkað verulega. Þann 1. september nam heimsmarkaðsverðið 44% af útsöluverði bensíns, en er nú aðeins um 32%.

Meðalverð á lítra af dísilolíu er nú 324 krónur en var 273 krónur 1. september. Dísillítrinn er því 51 krónu dýrari nú en þá. Á sama tíma er meðalverð á dísilolíu á heimsmarkaði svipað og það var í byrjun september.

Þróun eldsneytisverðs í Danmörku

Algengt bensínverð frá dælu í Danmörku í dag er 15,99 danskar krónur (DKK) á lítra, sem er lægsta verð sem sést hefur frá 11. ágúst 2026 þegar verðið var einnig 15,99 DKK á lítra. Uppreiknað í íslenskar krónur er bensínlítrinn í Danmörku um 35 krónum ódýrari í dag en hann var í byrjun september.

Dísillítrinn í Danmörku kostar víða 18,90 DKK og hefur ekki sést á sambærilegu verði síðan í byrjun september.

Eldsneyti á bíla í Danmörku almennt dýrara en hér á landi. Danir greiða kolefnisgjald, bensín- og dísilgjöld ásamt virðisaukaskatti við dælu en þar er ekki innheimt kílómetragjald. Íslenskir neytendur greiða kolefnisgjald og virðisaukaskatt við dælu og að auki kílómetragjald fyrir hvern ekinn kílómetra.

Hæsta álagning sem sést hefur

Samanburðurinn bendir til þess að smásöluverð eldsneytis hér á landi hafi hækkað umfram það sem breytingar á heimsmarkaðsverði eldsneytis gefa tilefni til.

Íslensku olíufélögin eru nú í nóvember með hæstu álagningu á bensín og dísilolíu sem sést hefur á liðnum árum. Þetta gerist á sama tíma og forsvarsmenn olíufyrirtækjanna segjast vera í liði með þjóðinni í baráttunni gegn verðbólgu.

Brýnt er að auka samkeppni á eldsneytismarkaði og draga úr áhrifum þeirrar fákeppni sem lengi hefur einkennt greinina.

Ofurálagning eða stríðsgróði?

Áfram er hætta á miklum verðsveiflum og háu dísilverði á næstu vikum og mánuðum. Það vekur því spurningar ef fyrirtæki nýta þessar aðstæður til að auka álagningu og hagnað umfram það sem raunverulegar kostnaðarhækkanir gefa tilefni til.

Neytendur eiga rétt á skýrum og gagnsæjum skýringum á þeim verðhækkunum sem hafa orðið á eldsneyti hér á landi á síðustu mánuðum.

Ófriðartímar og óvissa

Verð á tunnu af hráolíu á Brent-markaðnum í Norður-Evrópu er um þessar mundir svipað og það var fyrir tveimur og hálfum mánuði síðan.

Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran hafa skapað mjög spennuþrungna stöðu í Mið-Austurlöndum og haft veruleg áhrif á olíumarkaði. Íran er eitt stærsta olíuframleiðsluríki heims og gegnir lykilhlutverki í alþjóðlegum olíuviðskiptum og stjórnun skipaumferðar um Hormússund.

Eftir fyrstu árásirnar hækkaði olíuverð um 13% og með aukinni stigmögnun hækkaði það enn frekar. Verð á tunnu af hráolíu fór hæst yfir 117 Bandaríkjadali í lok október.

Lækkunina frá hæstu verðtoppum síðustu vikna má að mestu rekja til aukinnar bjartsýni um að samkomulag eða friður náist milli Bandaríkjanna og Írans í kjölfar miðannakosninganna í Bandaríkjunum.

Þrátt fyrir þessa lækkun er heimsmarkaðsverð á olíu enn töluvert hærra en það var áður en átökin hófust og Hormússundi var lokað. Framboð á hreinsuðum olíuvörum er áfram takmarkað og dísilmarkaðurinn sérstaklega viðkvæmur.

Jafnvel þótt samkomulag um frið næðist á næstunni myndi afkastageta olíuhreinsunarstöðva ekki aukast hratt. Það tæki því nokkurn tíma að tryggja nægar dísilolíubirgðir á heimsvísu og koma jafnvægi á markaðinn á ný.

Deila grein: