Októbersala á nýjum bifreiðum í Evrópu jókst um 3,4 % og það sem af er ári er aukningin komin upp í 6,0 %, samkvæmt nýjum tölum. Nú styttist í desember og ACEA, sem eru hagsmunasamtök evrópska bílaiðnaðarins, hafa tekið saman nýskráningartölur fyrir október. Þær enduðu í 1.128.252 bílum, sem er 3,4 % aukning. Samanborið við sama tíma í fyrra er staðan 11.019.441 nýr bíll í fyrra á móti 11.682.800 bílum í ár sem er 6,0 % aukning.
Hlutfall rafbíla er nú 23,4 % og þeir eru enn ekki vinsælasta drifrásin á markaðnum. Það er tvinnbílar, hybrid-rafbílar. Þótt rafbílasalan hafi aukist gífurlega, upp um 43,2 %, er markaðshlutdeild tvinnbíla nú 31 % í október, en var 21 % á sama tíma í fyrra.
Dísil- og bensínbílar halda áfram að hrapa
Dísil- og bensínbílar halda áfram að hrapa á evrópsla markaðnum. Bensínbílar lækkuðu um 18,9 % í október, en dísilbílar féllu um 20,6 %. Frakkland, Ítalía, Spánn og Þýskaland sáu tveggja stafa prósenta samdrátt í sölu hreinna jarðefnabíla það sem af er ári.
Volkswagen-samstæðan dróst saman um 7,6 % í október, Stellantis um 8 % og Renault um 9,8 %. Hyundai tapaði einnig sölu, en Toyota jók sölu sína rétt eins og Mercedes-Benz og BMW.
Kínversku bílamerkin juku öll sölu sína
Geely, BYD, SAIC, Tesla, Leapmotor og Xpeng, sem eru kínversku merkin á lista ACEA, juku öll sölu sína og samkvæmt listanum enduðu þau með 15,9 % markaðshlutdeild í október.
Dacia Sandero mest seldi bíllinn
ACEA tekur ekki saman tölur eftir einstökum bílgerðum, en DataForce getur hins vegar greint frá því að á fyrstu tíumánuðum ársins er Dacia Sandero í fyrsta sæti yfir mest seldu bílgerðirnar. Hann hefur selst í 5.000 fleiri eintökum en Tesla Model Y. Automotive News minnir þó á að lok hvers ársfjórðungs sé jafnan stóri sölumánuðurinn hjá Tesla.







