Japanski bílaframleiðandinn Nissan ætlar að loka annarri af tveimur framleiðslulínum sínum í Sunderland í Bretlandi. Samhliða því er 900 störfum fækkað á ýmsum stöðum í Evrópu. Verksmiðja Nissan í Sunderland hefur verið starfrækt frá miðjum níunda áratugnum. Þar eru módelin Qashqai, Juke og Leaf framleidd. Verksmiðjan er vægt til orða tekið hornsteinn í atvinnulífi svæðisins í Sunderland með mörg þúsund starfsmenn.
Nú dregur Nissan verulega úr starfsemi sinni eftir umtalaða fjárhagsörðugleika. Verksmiðjan í Sunderland hefur nálega helmingað framleiðslu sína á síðasta áratug, að því er fram kemur hjá Automotive News Europe. Árið 2016 rúlluðu yfir hálf milljón bíla út úr verksmiðjunni, en í fyrra var talan 273.174.
Kínversk innreið?
Nissan ætlar að láta sér nægja að nota aðra af tveimur framleiðslulínum verksmiðjunnar, en er um leið að reyna að finna aðra bílaframleiðendur sem gætu haft áhuga á að flytja inn. Kínversku fyrirtækin Chery og Dongfeng hafa verið nefnd í því samhengi.
Þegar Nissan greinir frá því í sömu andrá að fækkað verði í evrópska starfsliðinu, virðist það ekki ná til Sunderland-verksmiðjunnar, að minnsta kosti ekki í bili. Hugsanlega má rekja það til vonar um áframhaldandi rekstur ef annar framleiðandi lætur tilleiðast.







