Reglugerð um ökuskírteini breytt

Lestími: < 1 mín

Innviðaráðherra hefur gert breytingar á reglugerð um ökuskírteini. Veigamesta breytingin felur í sér í að læknisvottorðs verður framvegis ekki krafist sjálfkrafa sökum aldurs fyrr en umsækjandi hefur náð 75 ára aldri, í stað 65 ára aldurs áður að því er fram kemur í tilkynningu á vef stjórnarráðsins.

Þessi breyting á reglugerðinni var unnin í samvinnu við heilbrigðisráðuneytið. Markmiðið er að einfalda umsóknarferlið og gera það mannlegra og nútímalegra. Helstu rök heilbrigðisráðuneytisins fyrir breytingunni eru að heilsa fólks hefur batnað samhliða hækkandi lífaldri . Þá hefur reynslan sýnt að við endurnýjun ökuskírteina hjá þessum aldurshópi er læknisvottorð veitt nær undantekningalaust.

Breytingarnar munu því draga úr álagi sem skapast vegna reglulegrar endurnýjunar ökuskírteina og er því jákvæð breyting fyrir eldri ökumenn auk þess að draga úr óþarfa vottorðaskrifum heimilislækna. 

Eftir sem áður gildir meginregla 48. gr. umferðarlaga um að ökumönnum tryggi að þeir séu líkamlega og andlega færir um að stjórna ökutæki í hvert sinn, sama á hvaða aldri þeir eru.

Aðrar breytingar á reglugerð

Eftirtaldar breytingar hafa einnig verið gerðar á reglugerð um ökuskírteini (nr. 830/2011):

  • Umsækjandi um ökuskírteini fær nú rýmri tíma til að ljúka verklegu prófi frá því að hann stóðst bóklegt próf, eða allt að tólf mánuði. Samkvæmt fyrri reglugerð gildir bóklegt próf í sex mánuði en í tólf mánuði vegna tiltekinna flokka.
  • Kveðið er á um fimm ára gildistíma starfsleyfis ökuskóla.
  • Kveðið er með skýrari hætti en áður um að atvinnubílstjórar eigi að ljúka endurmenntun fyrir hverja endurnýjun ökuréttinda. Gildistími endurmenntunar er birtur í ökuskírteini og því bundinn gildistíma ökuskírteinis sem er til fimm ára.
  • Felld er burt krafa um að í sjálfskiptri kennslubifreið skuli vera gírstöng eða annar slíkur búnaður í stað fótstigs fyrir kúplingu svo að ökukennari geti rofið aflrás. Samkvæmt Samgöngustofu er kröfunni ekki framfylgt og sjálfskiptar kennslubifreiðir ekki búnar slíkum búnaði.
Deila grein: